
Frá aðalfundi ÖBÍ 2025 / SILJA
„Ungt fatlað fólk er fjölbreyttur hópur og með ólíkar tegundir fötlunar. Sum fæðast fötluð en önnur verða fötluð snemma á lífsleiðinni.“
UngÖBÍ fagnar áformum stjórnvalda um mótun ungmennastefnu.
Réttindi og virk þátttaka í samfélaginu
UngÖBÍ tekur undir þau sjónarmið að mikilvægt sé að tryggja sérstaklega að raddir jaðarsettra ungmenna heyrist. UngÖBÍ hefur tvívegis haldið Þjóðfund ungs fólks í samstarfi við Landssamband ungmennafélaga og Landssamband íslenskra stúdenta með góðum árangri. Á Þjóðfundi komu saman ungmenni með fjölbreyttan bakgrunn og unnu saman að tillögum sem stuðla að aðgengilegra samfélagi, öllum til heilla. Það er mikilvægt að finna ólíkar leiðir til þess að valdefla ungt fólk, opna augu ungs fólks fyrir áskorunum jaðarsettra ungmenna og vinna þannig á bug hatursorðræðu sem er því miður að ryðja sér til rúms í samfélaginu, ekki síst gegn fötluðum ungmennum.
Til þess að skapa vettvang fyrir ungt fólk til þess að hittast og taka virkan þátt í samfélaginu þarf að vera til staðar aðgengilegt húsnæði. Við í UngÖBÍ höfum ítrekað rekið okkur á það hversu erfitt það er að finna aðgengilegt húsnæði fyrir viðburði sem hefur mjög neikvæð áhrif á tækifæri fatlaðra ungmenna til þess að taka þátt í samfélaginu. Það er ljóst að þörf er á því að ráðast í aðgengisátak en því miður getur það reynst staðarhöldurum mjög kostnaðarsamt sem verður til þess að staðarhaldarar ráðast síður í nauðsynlegar breytingar sem tryggja aðgengi fatlaðra ungmenna. Það tapa allir þegar hindranir eru til staðar og því kallar UngÖBÍ eftir því að tryggt verði að rekstraraðilar geti sótt um fjármagn til hins opinbera til þess að bæta aðgengi að stöðunum sínum. Það er nauðsynlegt skref til þess að tryggja aðgengi fatlaðra ungmenna að samfélaginu til jafns við ófatlaða jafningja sína.
Menntun fyrir öll!
Menntun er hornsteinn þekkingarsamfélags og það býr mjög mikil þekking í fötluðum ungmennum sem fær því miður ekki að blómstra vegna þess að aðgengi að menntun er ekki gott. Á hverju ári fáum við fregnir um að ungt fatlað fólk komist ekki inn í sérnámsbrautir framhaldsskóla. Sú staða er afar sérkennileg í ljósi þess að þessi hópur hefur nýtt sér stuðning í gegnum meirihluta sinnar grunnskólagöngu og því ætti fjöldi þeirra ekki að koma stjórnvöldum á óvart.
Til þess að tryggja það að fötluð ungmenni njóti jafns aðgengis að háskólanámi þurfa allar háskólabyggingar að vera aðgengilegar, sjúkrapróf þurfa að vera í boði í öllum greinum ásamt viðeigandi stuðningi á einstaklingsgrundvelli en það er mjög mikilvægt að taka samtalið við þau sem þurfa stuðning í námi um hvaða stuðnings er þörf og minnka þá líkur á brotthvarfi.
Með því að tryggja aðgengi fatlaðra ungmenna að háskólanámi þá eykst þátttaka í samfélaginu til muna en aðgengishindranir eru manngerðar sem þýðir sömuleiðis að við getum ráðist í það að eyða hindrunum.
Öll með!
Íþróttir, tómstunda- og félagsstarf eru mjög mikilvægir þættir samfélagsins. Fötluð ungmenni hafa í gegnum árin verið okkar fremstu íþróttamenn og unnið til verðlauna víða um heim í sinni íþróttagrein. Það er þó kostnaðarsamt að bæði æfa og taka þátt í keppni í íþróttum, opinber stuðningur við fatlaða afreksmenn hefur aukist en það verður að athuga það að kostnaður við aðstoðarfólk sem íþróttamanneskjan þarf að greiða sjálf er hár og sá kostnaður er fljótur að ganga á það fjármagn sem er til staðar.
Atvinna og jöfn tækifæri
Ungt fatlað fólk er fjölbreyttur hópur og með ólíkar tegundir fötlunar. Sum fæðast fötluð en önnur verða fötluð snemma á lífsleiðinni. Mörg þeirra sem hafa spreytt sig á atvinnumarkaði eða reynt að fá vinnu deila þó þeirri upplifun að kastljósinu sé beint að því hvað þau geti ekki gert, í stað þess að draga fram allt sem þau hafa fram að færa. Sumt ungt fatlað sér sig ekki fært um að spreyta sig á atvinnumarkaði vegna sinnar fötlunar, en þau sem hafa orku og vilja til eiga að fá jöfn tækifæri til að sanna sig og bjóða fram krafta sína. Oft eru lausnirnar einfaldar í formi viðeigandi aðlögunar, fræðslu og aðgengis að hlutastörfum.
Aðgengi að húsnæði og virðing fyrir fjölbreyttum fjölskyldum
Öruggt heimili er hornsteinn samfélagsins og mikilvægt að ungt fatlað fólk, sérstaklega þau sem eru að taka sín fyrstu skref út í lífið, hafi jafnt aðgengi að öruggu húsnæði og ófatlaðir jafnaldrar þeirra. Sjálfstætt líf fatlaðs fólks er ein af grunnstoðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF). Ungt fatlað fólk á rétt á að velja hvar það býr og með hverjum og á ekki að vera vistað inni á stofnunum.
Fjölskyldur koma í öllum stærðum og gerðum. Ungt fatlað fólk stofnar einnig fjölskyldur, bæði smáar sem og stórar. Í 23. gr. SRFF segir að aðildarríkin skuli gera árangursríkar og viðeigandi ráðstafanir í því skyni að uppræta mismunun gagnvart fötluðu fólki í öllum málum sem lúta að hjónabandi, fjölskyldu, foreldrahlutverki og samböndum, á sama hátt og gildir um aðra. Að mati UngÖBÍ er mikilvægt að þessar áherslur komi fram í ungmennastefnu Íslands.
UngÖBÍ áskilur sér rétt til að koma á framfæri frekari athugasemdum á seinni stigum.
Ekkert um okkur án okkar!
Með vinsemd og virðingu,
Eiður Welding
formaður UngÖBÍ
Kjartan Þór Ingason
verkefnastjóri ÖBÍ
Áform um mótun ungmennastefnu
Mál nr. S-40/2026. Mennta- og barnamálaráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 24. mars 2026

