
Þann 26. mars í Hvammi á Grand Hótel Reykjavíkur, kl. 13:00–16:00, standa Heilbrigðishópur ÖBÍ réttindasamtaka og Siðfræðistofnun Háskóli Íslands fyrir málþinginu „Veik og þreytt dag eftir dag – konur sem lifa við langvinn veikindi“.
Streymi frá viðburðinum birtist neðst í þessari frétt.
Talsvert hefur verið rætt um kvenheilsu og langvinn veikindi kvenna að undanförnu en lítið um aðgerðir. Á þessum viðburði munu hagsmunasamtök þeirra kvenna og kvára sem lifa við langvinn veikindi segja frá reynslu sinni sem og mikilvægum aðgerðum til að bæta stuðning og þjónustu við þennan hóp.
Á dagskrá eru stutt erindi frá ólíkum samtökum og að þeim loknum pallborðsumræður með spurningum úr sal, þar sem fjallað verður um reynslu, áskoranir og stöðu kvenna.
Það er orðið fullbókað á viðburðinn í salnum Hvammi, en ekki örvænta – þú getur fylgst með viðburðinum í beinu streymi á www.obi.is.
DAGSKRÁ
Kl. 13.00-16.00 með 45 mín kaffihléi
13.00: Fundastjóri Marta Jóns Hjördísardóttir talskona sjúklinga á Landspítala opnar
13.05: Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður ÖBÍ
13.10: Telma Sigtryggsdóttir – formaður heilbrigðishóps ÖBÍ
13.20: Nanna Hlín Halldórsdóttir
13.30: Hugrún Vignisdóttir – Samtök um POTS á Íslandi
13.40: Freyja Imsland – ME félag Íslands
13.50: Sigríður Elín Ásgeirsdóttir – Ský – Félag fólks með Post Covid
14.00 Hrönn Stefánsdóttir – Gigtarfélag Íslands
14.10 Kaffihlé
15.00 Valgerður Þórdís Snæbjarnardóttir – Endósamtökin
15.10 Elísa Ósk Línadóttir – PCOS samtök Íslands
15.20 Anna Sigrún og Steinunn Radha – Tabú – femínísk fötlunarhreyfing
15.30 Pallborð með spurningum úr sal

