Stjórnsýsla velferðarmálaUmsögn

Drög að reglugerð um innra eftirlit

By 31. mars 2026apríl 1st, 2026No Comments

ÖBÍ réttindasamtök fagna framlagningu draga að reglugerð um innra eftirlit með þjónustu á sviði velferðarmála. Skýr og markviss umgjörð um eftirlit er forsenda þess að tryggja gæði þjónustu, réttindi notenda og traust til kerfisins. Sérstaklega er mikilvægt að slíkt eftirlit tryggi raunverulega vernd í þjónustu við fatlað fólk sem oft er í viðkvæmri stöðu gagnvart þjónustukerfum.

Við lestur draganna vekur þó athygli að hætta er á að innra eftirlit verði að verulegu leyti formsatriði fremur en virkt og árangursríkt tæki til umbóta nema skýrari kröfur verði settar um aðgengi, eftirfylgni og ábyrgð.

Skilgreining og skýrleiki innra eftirlits (3. gr.)

Í 3. gr. draganna er gert ráð fyrir að þjónustuveitendur viðhafi virkt innra eftirlit en ekki er nægilega skýrt hvað felst í því hugtaki. Til að tryggja samræmi og gæði er nauðsynlegt að skilgreina lágmarkskröfur, svo sem reglubundnar úttektir, notkun mælikvarða á gæði þjónustu, þátttöku notenda og skjalfest verklag. Án slíkra viðmiða er hætta á að eftirlit verði mismunandi eftir aðilum og að raunverulegt innihald þess verði takmarkað.

Kvartanir og raunverulegt aðgengi (7. gr.)

Kvörtunarleiðir eru ein af mikilvægustu öryggisventlum í þjónustu við fatlað fólk. Ef þær eru ekki aðgengilegar, öruggar og leiða til raunverulegra viðbragða eru þær í reynd gagnlausar.

ÖBÍ telur sérstaklega mikilvægt að tryggja að kvörtunarleiðir séu aðgengilegar öllum notendum. Í dag er kvörtunarferli í mörgum tilvikum rafrænt og krefst rafrænna skilríkja sem útilokar ákveðin hóp fatlaðs fólks frá því að koma kvörtunum á framfæri. Í slíkum tilvikum er réttur til að kvarta aðeins til staðar formlega en ekki í reynd.

ÖBÍ leggur því til að:

  • Kvörtunarleiðir séu aðgengilegar með fjölbreyttum hætti þar á meðal án kröfu um rafræn skilríki
  • Skilgreindur sé viðbragstími og skylda til að veita endurgjöf
  • Og að kvartanir séu greindar og nýttar til umbóta.

Öryggi og skráning atvika (8. gr.)

Skylda til að skrá og tilkynna óvænt atvik er grundvallaratriði fyrir öryggi og vernd notenda. Ákvæði um að skrá skuli atvik þegar vafi leikur á og að tilkynna skuli alvarleg atvik eru mikilvæg.

ÖBÍ telur þó nauðsynlegt að styrkja ákvæðið þannig að:

  • Vanræksla á skráningu teljist frávik sem sæti eftirfylgni
  • Atvik séu greind kerfisbundið og leiði til úrbóta
  • Og að upplýsingar séu nýttar markvisst í áframhaldandi eftirliti.

Þetta er sérstaklega mikilvægt þar sem fatlað fólk getur átt erfitt með að koma kvörtunum á framfæri og því gegnir skráning atvika lykilhlutverki í vernd réttinda þeirra.

Eftirfylgni og ábyrgð (15. gr.)

Úrbótaáætlun án sannprófunar á árangri er ekki eftirfylgni. Brýnt er að reglugerðin geri þá kröfu að úrbótaáætlun verði ekki að loforðalista sem hverfur ofan í skúffu.

ÖBÍ leggur til að í reglugerðinni verði tekið fram að úrbótaáætlun:

  • Meti sérstaklega árangur úrbóta
  • Tryggi reglubundna eftirfylgni og eftir atvikum endurúttektir
  • Skilgreini viðbrögð ef úrbætur reynast ófullnægjandi.

Gagnsæi og aðhald

Til að eftirlit skili árangri þurfa niðurstöður þess að vera aðgengilegar og skiljanlegar þannig að notendur geti nýtt þær til að gæta réttar síns og taka upplýstar ákvarðanir.

ÖBÍ leggur áherslu á að reglugerðin tryggi ekki aðeins formlegt innra eftirlit heldur raunverulegt aðhald, gagnsæi og umbætur í þjónustu. Það er forsenda þess að réttindi fatlaðs fólks sé virt í framkvæmd og að traust ríki til þeirra þjónustukerfa sem einstaklingar eru háðir í daglegu lífi.

ÖBÍ áskilur sér rétt til að koma á framfæri frekari athugasemdum á seinni stigum.

Ekkert um okkur án okkar!

Með vinsemd og virðingu,

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ

Kjartan Þór Ingason
verkefnastjóri ÖBÍ

Þórdís Bjarnleifsdóttir
starfsnemi ÖBÍ


Drög að reglugerð um innra eftirlit
Mál nr. S-62/2026. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 31. mars 2026