FréttStafrænt aðgengi

Ráðherra afhenti Apple áskorun ÖBÍ

Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, fundaði með fulltrúum bandaríska tæknirisans Apple í London í gær og afhenti þeim meðal annars áskorun frá ÖBÍ réttindasamtökum um að bjóða upp á íslensku í lausnum fyrirtækisins. Má þar til dæmis nefna Siri, talgervla og raddstýringu.

Í áskoruninni er bent á að íslenskan sé ekki aðeins lykillinn að menningu, sjálfsmynd og þátttöku í samfélaginu, heldur einnig forsenda þess að margt fatlað fólk geti nýtt stafræna tækni til jafns við aðra.

Mbl.is hefur eftir Loga Má að málið snerist ekki aðeins um framtíð íslenskrar tungu, heldur einnig um aðgengi. Hann benti á að tæki Apple gætu haft mikið gildi í þjálfun og endurhæfingu, en að stór hluti fatlaðs fólks gæti ekki nýtt þau til fulls þar sem aðgengislausnirnar væru ekki í boði á íslensku.

Á fundinum voru einnig fulltrúar Almannaróms, miðstöðvar í máltækni á Íslandi. Tilgangur fundarins var að óska eftir því að íslenska verði hluti af iOS stýrikerfi Apple og að íslenskur stuðningur verði innleiddur í lykillausnir fyrirtækisins.

Apple féllst ekki á fundinum á að gera stýrikerfi sitt aðgengilegt á íslensku þegar í stað, en fram hefur komið að aðilar hyggist halda áfram samtalinu.