
Adobe Stock
ÖBÍ réttindasamtök leggja áherslu á að við útfærslu áætlunar um Gönguvæna borg 2035 sé sérstaklega komið til móts við þarfir fatlaðs fólks. Það er eðlilegt og sjálfsagt að hvetja borgarbúa til útivistar en kerfin mega ekki vera útilokandi. Borgin þarf að vera gönguvæn fyrir okkur öll.
Stefna og aðgerðaáætlun Reykjavíkurborgar um Gönguvæna borg 2036 er ágæt, en tryggja verður að framkvæmd hennar fylgi sömu áherslum. Áætlanir og framkvæmdir fara ekki alltaf vel saman.
Aðgengi að gönguleiðum og útivistarsvæðum þarf að vera auðvelt með tilliti til aðkomu bifreiða og almenningssamgangna. Gönguleiðir þurfa að vera með föstu og sléttu undirlagi. Bekkir og tyllur þurfa að vera til staðar með jöfnu millibili. Hreyfihamlað fólk ræður illa við mikinn halla og því er æskilegt að jafna hæðarmun þar sem því er við komið. Því ættu bílastæði hreyfihamlaðra heldur aldrei að vera staðsett í halla.
Frágangur við gönguþveranir þarf að vera sléttur. Þegar kantur eða rauf er við niðurtekt upp á gangstétt telst hún ekki aðgengileg hreyfihömluðu fólki. Snjómokstri hefur verið ábótavant og þegar helstu gönguleiðir eru ekki ruddar, t.d. að biðskýlum, verður fatlað fólk áfram háð einkabílnum.
Gönguljósabúnaður þarf að gefa frá sér hljóðmerki og auðvelda blindu og sjónskertu fólki að fara sinnar leiðar án aðstoðar. Leiðarlínur og athyglissvæði þurfa að vera til staðar á gönguleiðum.
Öryggisins vegna er ekki ráðlegt að slökkt sé á götuljósum fyrr en eftir kl. 8:30 á morgnana yfir veturinn, það er að segja eftir að hringt hefur verið inn í fyrsta tíma í grunnskólum.
Fram kemur að stýrihópurinn hafi notið ráðgjafar sérfræðinga utan og innan borgarkerfisins, en ekki er minnst á samráð við notendur. Í mannréttindaráði borgarinnar starfar samráðshópur um málefni fatlaðs fólks innan mannréttindaráðs sem ekki var leitað til í ferlinu. Lagt er til að leitað verði til hópsins varðandi útfærslu aðgerðaráætlunar 2026-3030.
Ekkert um okkur án okkar.
Með vinsemd og virðingu,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ
Stefán Vilbergsson
verkefnastjóri ÖBÍ
Gönguvæn borg 2036. Stefna og aðgerðaráætlun.
Reykjavíkurborg – Umhverfis- og skipulagssvið. Samráð 30.
Umsögn ÖBÍ, 27. apríl 2026

