
Adobe Stock
ÖBÍ réttindasamtök taka undir markmið frumvarpsins og fagna breytingum frá frumvarpsdrögunum um að ráðherra beri að setja reglugerð um innra eftirlit í stað þess að hafa einungis heimild til að setja reglugerð. Meirihluti landsmanna hefur eða mun nýta sér einhverja velferðarþjónustu á lífsleiðinni. Sumir þurfa að reiða sig mikið eða alfarið á ákveðna velferðarþjónustu og hafa takmarkaða getu til að tilkynna um alvarleg atvik, t.d. vegna fötlunar. ÖBÍ telur því brýnt að Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) hafi öll bjargráð til að geta sinnt lögbundnu hlutverki sínu sem er að leiða fram í rannsókn skýringar að baki alvarlegum óvæntum atvikum í þeim tilgangi að auka öryggi og gæði. ÖBÍ vill koma eftirfarandi ábendingum og athugasemdum á framfæri.
Skráningarskylda og aðhald
ÖBÍ fagna breytingum á 11. gr. laganna um að allir veitendur þeirrar þjónustu sem lýtur eftirliti GEV skulu skrá óvænt atvik sem eiga sér stað þegar þjónusta er veitt og skal skráningarskyldan vera hluti af innra eftirliti. Skýr atvikaskráning er mikilvægur liður í að tryggja innri og ytri eftirlitsaðilum aðgengi að tölfræðiupplýsingum um fjölda atvika þjónustuveitanda og upplýsingar um stöðu einstakra mála svo hægt verði að bregðast rétt við á réttum tíma. Að mati ÖBÍ eru 14.-16. gr. um frumkvæðiseftirlit ekki nógu skýrar einar og sér þegar kemur að allvarlegu sinnuleysi skráningarskyldu.
Í 3. gr. frumvarpsins kemur fram að GEV beri að kanna hvort alvarlegt óvænt atvik gefi tilefni til að beita úrræðum skv. IV. kafla. ÖBÍ telur ákvæðið skýrt og að þörf sé á samskonar aðhaldi ef þjónustuaðili vanrækir skráningarskyldu sína. ÖBÍ leggur til að bætt verði við ákvæði þess eðlis ef þjónustuveitandi getur ekki sýnt fram á fullnægjandi atvikaskráningar að beiðni GEV, beri GEV að kanna hvort það gefi tilefni til að beita úrræðum skv. IV. kafla.
Rannsóknir, frumkvæðisathuganir og eftirfylgni
ÖBÍ telur nýtt ákvæði sem felur í sér að telji GEV ekki tilefni til rannsóknar á alvarlegu óvæntu atviki skuli sú ákvörðun vera skrifleg og rökstudd vera góða viðbót fyrir gagnsæja stjórnsýslu. Brýnt er að tryggja að einstaklingar sem tilkynna slík atvik fái skýr svör um ákvörðun GEV og fái jafnframt tækifæri til að andmæla ákvörðuninni.
Skýrslur GEV vegna rannsóknar á alvarlegu óvæntu atviki eða vegna frumkvæðisathugunar er mikilvægur liður í að vinna gegn kerfislægum vanda og brotalöm og stuðla að trausti og öryggi í velferðarþjónustu. Því er brýnt að notendur þjónustunnar, aðstandendur og hagaðilar geti treyst því að þjónustuveitandi hefji strax vinnu á viðeigandi úrbótum í samræmi við tillögur í skýrslu GEV.
ÖBÍ skilaði umsögn til félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um reglugerðardrögin, þar sem gerð var athugasemd um skort á skilgreindum viðbrögðum ef úrbætur reynast ófullnægjandi. ÖBÍ hvetur velferðarnefnd Alþingis til að beita sér fyrir því að viðbrögð vegna skorts á úrbótum verða tilgreind í 15. gr. í reglugerð um innra eftirlit.
Jafnt aðgengi að tilkynningar- og kvörtunarleiðum GEV
Í samráðskafla frumvarpsins er tekið fram mikilvægi þess að fatlaðir notendur velferðarþjónustu mæti ekki hindrunum í samskiptum við opinbera aðila. Framkvæmdin varðandi tilkynningar um alvarleg óvænt atvik og viðbrögð við tilkynningum mun að umtalsverðu leyti helgast af útfærslu í reglugerð. ÖBÍ gerði athugasemd við drög að reglugerð um innra eftirlit GEV og lagði til úrbætur á 7. gr. draganna sem fjalla um kvartanir og lagði til að reglugerðin tilgreini að kvörtunarleiðir verði aðgengilegar með fjölbreyttum hætti, þar á meðal án kröfu um rafræn skilríki.
ÖBÍ hvetur velferðarnefnd Alþingis til að beita sér fyrir því að 7. gr. reglugerðar um innra eftirlit samræmist áherslum lagafrumvarpsins um mikilvægi jafnt aðgengi fatlaðra notenda að kvörtunarleiðum til GEV.
ÖBÍ áskilur sér rétt til að koma á framfæri frekari athugasemdum á seinni stigum.
Ekkert um okkur án okkar!
Með vinsemd og virðingu,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ
Kjartan Þór Ingason
verkefnastjóri ÖBÍ
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (rannsókn alvarlegra óvæntra atvika)
598. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 4. maí 2026

