
© Fjármála og efnahagsráðuneytið / HARI
Í umsögn þessari kynna ÖBÍ réttindasamtök helstu áherslumál sín í tengslum við fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2027-2031. ÖBÍ eru sem endranær reiðubúin að fylgja eftir umsögn sinni og óska eftir að eiga samstarf við frekari úrvinnslu áætlunarinnar.
1.
Örorka og málefni fatlaðs fólks / kjaramál
Samkvæmt fjármálaáætlun munu framlög til málefnasviðsins lækka að raungildi á tímabili áætlunarinnar. Auka á framlög til sjúkra- og endurhæfingarlífeyris en á móti á að draga úr greiðslum lífeyris vegna örorku án frekari útskýringa. Hér getur tvennt komið til. Annað er að fleiri munu fá hlutaörorkulífeyri sem öllu jafnan hefðu fengið örorkulífeyri og hitt er að vegna tilkomu nýs mats á örorku (samþætt sérfræðimat) mun fjöldi örorkulífeyristaka fara lækkandi. Að auki munu tímabundin framlög vegna jöfnunar örorkubyrði almennra lífeyrissjóða falla niður án þess að nokkuð annað komi í staðinn. Það mun leiða til kjaraskerðinga á meðal lífeyristaka og gegn því legst ÖBÍ. Óljóst er í fjármálaáætluninni hvernig á að bæta grunnframfærslu tekjulágra og tryggja afkomuöryggi fólks eins og boðað var í stjórnarsmáttmála ríkisstjórnarinnar.
» ÖBÍ leggur til að tryggt verði að víxlverkun greiðslna frá TR og lífeyrissjóðum verði ekki tekin upp að nýju.
2.
Málefni aldraðra
Framundan er mikil áskorun vegna fjölgunar hjá öldruðum en á næstu 30 árum mun þeim fjölga úr 15.000 í tæp 40.000. Undanfarið ár hefur myndast mikil „skuld“ á fjölda hjúkrunarrýma. Það hefur leitt til þess að Landspítalinn hefur ekki verið rekinn á fullum afköstum síðustu 15 ár sem hefur leitt til lengri biðlista eftir þjónustu spítalans. Þrátt fyrir að framlögin til þessa málefnasviðs séu aukin að raungildi á tímabilinu er það mat ÖBÍ að betur má en duga skal til að bæta þjónustuna.
» ÖBÍ hvetur stjórnvöld til að gefa rækilega í til að vinna upp skuld eftir hjúkrunarrýmum þannig að biðlistar eftir þjónustu og meðferðum á vegum Landspítalans styttist.
3.
Heilbrigðismál
Á nær öllum málefnasviðum sem heyra undir heilbrigðismál er raunlækkun nema hvað varðar framlög til hjúkrunar- og endurhæfingarþjónustu og til fjárfestingar. Það er jákvætt að auka framlög umfram verðlag hvað varðar hjúkurnar- og endurhæfinguaþjónustu og styður ÖBÍ það. ÖBÍ lýsir þó almennum vonbrigðum með að framlög séu ekki aukin til heilbrigðismála almennt.
» ÖBÍ hvetur stjórnvöld til að auka framlög til heilbrigðisþjónustunnar þannig að framlögin verða sambærileg og gengur og gerist hjá hinum Norðurlöndunum.
» ÖBÍ hvetur stjórnvöld til að auka framlög til að stytta biðlista barna eftir heilbrigðisþjónustu.
3.a. Sjúkrahúsþjónusta
Þegar framlögin til málefnasviðsins er skoðuð í heild munu framlög til sjúkrahúsþjónustu lækka að raungildi um sjö milljarða þegar tekið er tillit til verðlagsbreytinga á tímabilinu. Jafnframt er gert ráð fyrir því að bæta sjúkraskrákerfi sem er mikið öryggismál fyrir fólk sem notar heilbrigðiskerfið mikið. ÖBÍ styður áform um áframhaldandi uppbyggingu við Landspítalann við Hringbraut, sérstaklega byggingu nýs húsnæði fyrir geðsvið og stækkunar þjónustumiðstöðvar fyrir krabbameinsmeðferðir.
» ÖBÍ leggur til að framlög til rekstur Landspítalans haldi raungildi sínu á tímabili áætlunarinnar.
3.b. Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa
Samkvæmt fjármálaáætluninni munu framlög til málefnasviðsisns hækka um 11 milljarða á tímabilinu en þegar tekið er tillit til verðlagsþróunar á tímabilinu þyrftu framlögin að hækka um 16 milljarða. Þá stendur til að draga úr kröfum um vottorð sem ÖBÍ fagna. Sama á við um að efla heimahjúkrun og gera fólki kleift að búa lengur heima. Auka á fé til Sjúkratrygginga Íslands til að stytta biðlista en ekki er tilgreint um hvaða biðlista ræðir. Samkvæmt áætluninni verða gerðar breytingar á greiðsluþátttöku einstaklinga í heilbrigðiskerifnu og hvetur ÖBÍ til þess að lögð verði áhersla á breytingarnar leiði til lækkunar.
» ÖBÍ leggur til að framlög til málaflokksins heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa haldi raungildi sínu á tímabili áætlunarinnar.
3.c. Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta
ÖBÍ fagna því að framlög til málefnasviðsins muni hækka að raungildi á tímabilinu. Fyrst og fremst á að auka framboð af hjúkrunar- og dvalarrýmum fyrir aldraða. Auka á framlög til meðferða og endurhæfingar fólks vegna vímuefnavanda sem ÖBÍ fagnar. Með nýju almannatryggingakerfi jókst vægi endurhæfingar og því mikilvægt að aðgengi að endurhæfingaúrræðum verði tryggt.
» ÖBÍ hvetur til greiðara aðgengis að endurhæfingu.
3.d. Lyf og lækningavörur
Samkvæmt áætluninni munu framlög til málefnasviðsins verða að mestu í samræmi við þróun verðbólgu. Það veldur ÖBÍ miklum vonbrigðum að sjá engar áherslur í áætluninni varðandi hjálpartæki fyrir fatlað fólk. Hjálpartæki eru grunnforsenda fyrir virkni og þátttöku fatlaðs fólks. ÖBÍ bindur vonir við að endurskoðun á stjórnsýslu lyfjamála, þátttaka í stærri útboðum meðal Norðurlandanna leiði til þess að verð á lyfjum lækki og lyfjum á markaði fjölgi.
» ÖBÍ hvetur til að framlög til hjálpartækja verði aukin.
4.
Fjölskyldumál
Gert er ráð fyrir að útgjaldarammi málefnasviðsins lækki um 240 milljónir á tímabilinu en um 12,7 ma.kr. að raungildi að teknu tilliti til verðlagsbreytinga. ÖBÍ fagnar því að barnabætur haldi verðgildi sínu á tímabili áætlunarinnar og því að sérstaklega eigi að auka framlag til að stytta biðlista eftir greiningu hjá börnum. ÖBÍ telur að framlögin sem lækkuð verða vegna flóttafólks skýri einungis hluta þeirrar lækkunar sem verður innan málefnasviðsins á tímabilinu og saknar frekari útskýringa.
» ÖBÍ hvetur til þess að úrbótum í málefnum barna með fjölþættan vanda verði hraðað svo hægt verið að styrkja þjónustu við þau.
» ÖBÍ hvetur stjónvöld til að lækka ekki framlög til fjölskyldumála og barna sem þurfa á aðstoð að halda.
5.
Vinnumarkaður og vinnumarkaðsaðgerðir
5.a. Vinnumarkaðsaðgerðir
Í fjármálaáætluninni eru boðaðar aðgerðir til að gera sem flestum kleift að vera virkir þátttakendur á vinnumarkaði og sérstaklega hjá fólki með mismikla starfsgetu án þess að tilgreina þær sérstaklega.
5.b. Atvinnuleysi
Framlög til málasviðsins munu lækka vegna breytinga á atvinnuleysistímabilinu sem og spá um minna atvinnuleysi. ÖBÍ telur að ekki fari saman að lækka framlag til málefnasviðsins vegna spár um minna atvinnuleysi í ljósi þess að Þjóðhagsspá sömu fjármálaáætlunar spáir hærra atvinnuleysi eða um 4%. Í fjármálaáætluninni er boðað styttra tímabil sem fólk fær greiddar atvinnuleysisbætur. ÖBÍ leggur áherslu á að við styttingu atvinnuleysistímabils verði gripið til aðgerða til að fjölga úrræðum sem gerir fólki kleift að snúa aftur á vinnumarkaðinn.
» ÖBÍ leggur til fjölgun úrræða sem styðja fólk til að snúa aftur á vinnumarkaðinn.
6.
Framhaldsskólastig
ÖBÍ fagnar því að sérstaklega sé minnst á fjölgun fatlaðra nemenda á starfsbrautum og mikilvægi þess að stuðla að jafnrétti fatlaðs fólks til náms. Hins vegar vekur það áhyggjur að samhliða þessum markmiðum sé gert ráð fyrir umtalsverðum niðurskurði útgjaldaramma málefnasviðsins á tímabilinu. Slíkt getur torveldað möguleika skólanna til að mæta auknum fjölbreytileika, tryggja viðeigandi aðlögun í námi og draga úr brotthvarfi fatlaðra nemenda.
ÖBÍ leggur áherslu á að efling starfs- og verknáms byggi á aðgengi fyrir öll, einstaklingsmiðuðu námi og raunhæfum úrræðum fyrir nemendur með ólíkar þjónustuþarfir. Mikilvægt er að reiknilíkan málefnasviðsins taki mið af fötlun, stuðningsþörfum og tegund náms svo fjármögnunin endurspegli raunverulegan kostnað við inngildandi skólakerfi.
» ÖBÍ leggur til að útgjaldarammi málefnasviðsins taki mið af þörfum skóla til að uppfylla stuðningsþarfir og viðeigandi aðlögun fyrir fatlaða nemendur.
7.
Háskólastig
ÖBÍ bendir á að þrátt fyrir áskoranir í fjármögnun háskólanna er aukning fjárveitinga takmörkuð á tímabilinu og samhliða er gert ráð fyrir hagræðingu. Slíkt vekur spurningar um getu háskólanna til þess að tryggja gæði náms, aðgengi og inngildingu í takt við sett markmið.
ÖBÍ tekur undir að öflugt háskólastarf sé lykilforsenda farsældar Íslands. Til þess að framtíðarsýn fjármálaáætlunarinnar nái fram að ganga er þó nauðsynlegt að tryggja raunverulegt og jafnt aðgengi fatlaðs fólks að háskólanámi, í samræmi við SRFF.
ÖBÍ fagnar áherslu á sveigjanlegt nám, fjarnám, raunfærnimat og örnám, en bendir á að fyrir marga fatlaða nemendur er slíkt námsfyrirkomulag forsenda þátttöku. ÖBÍ hvetur stjórnvöld til að tryggja að aðgengi fatlaðra nemenda verði samþætt í stefnumótun og fjármögnun svo háskólamenntun geti orðið raunveruleg grunnstoð farsældar fyrir allt samfélagið.
» ÖBÍ hvetur stjórnvöld til að tryggja að aðgengi fatlaðra nemenda verði samþætt í stefnumótun og fjármögnun svo háskólamenntun geti orðið raunveruleg grunnstoð farsældar fyrir allt samfélagið.
8.
Sveitarfélög og byggðamál – NPA samningar
Í 9. tl. stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar segir að fjármagna eigi þann fjölda samninga um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) sem gefin hafa verið fyrirheit um. Í áætluninni er þó hvergi getið um NPA samninga. Ekki fæst séð í töflum málefnasviðsins hvort gert sé ráð fyrir því fjármagni sem þarf til að svara þörf fyrir NPA samninga. Jafnframt má greina lækkun á framlögum til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á tímabili fjármálaáætlunar.
» ÖBÍ óskar eftir útlistun á hversu mikið fjármagn er gert ráð fyrir að muni fara í fjármögnun NPA samninga á tímabili fjármálaáætlunar.
» ÖBÍ leggur áherslu á að tryggt verði fjármagn til NPA samninga í samræmi við þörf og unnið verði að verulegri styttingu biðlista.
9.
Húsnæðis- og skipulagsmál
Líkt og fram kemur í fjármálaáætluninni eru áskoranir víða í húsnæðismálum. Samkvæmt mannvirkjalögum á allt húsnæði að vera aðgengilegt öllum, sbr. algild hönnun. Talsverður misbrestur hefur verið á framkvæmd laganna hvað það varðar. Því hefur fatlað fólk haft færri valmöguleika og borið hærri kostnað. Ef markmið húsnæðisstefnu fyrir árin 2024-2038 nást er það til þess fallið að hafa jákvæð áhrif á húsnæðismál fatlaðs fólks. Á móti hefur ÖBÍ áhyggjur þegar fjárheimildir málefnasviðsins munu lækka umtalsvert á næstu fimm árum samkvæmt fjámálaáætluninni.
» ÖBÍ leggur til að framlög til málaflokksins haldi raungildi sínu á tímabili áætlunarinnar.
10.
Aðgengis- og aðlögunarsjóður
ÖBÍ fagnar áformum ríkisstjórnarinnar í stjórnarsáttmála um að stofnaður verði aðgengis- og aðlögunarsjóður til að styrkja fatlað fólk til breytinga á húsnæði. Íbúðarhúsnæði, sérstaklega eldra húsnæði, er að stærstum hluta óaðgengilegt fötluðu fólki. Því miður virðist ekki vera gert ráð fyrir stofnun sjóðsins í fjármálaáætluninni.
» ÖBÍ leggur til að tryggð verði framlög til aðgengis- og aðlögunarsjóðs.
11.
Stofnframlög til óhagnaðardrifinna leigufélaga
ÖBÍ fagnar fyrirhuguðum hækkunum í frumvarp til laga um breytingu á lögum um almennar íbúðir sem heimila ríkinu að veita allt að 23% í almenn stofnframlög, auk hækkunar á sérstöku viðbótarframlagi úr 4% í 5%. Því vekur það furðu að á sama tíma eigi ekki að framlengja tímabundnar hækkanir á stofnframlögum og að heildarútgjöld til málaflokksins dragist saman um 7,5% á tímabilinu, með tilliti til verðlagsþróunar.
» ÖBÍ leggur til að ríkið framlengi tímabundnar hækkanir stofnframlaga út árið 2031.
12.
Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar
Undanfarin ár hefur töluverðum fjármunum verið sóað í nýsköpun (t.d. stafræna þróun) sem er óaðgengileg fötluðu fólki. Til þess að vel takist til þarf að vinna skipulega með stefnumótun og tryggja að áherslur um lýðræði og mannréttindi séu sýnilegar á öllum stigum áætlunargerðar, sérstaklega sem snýr að málefnum fatlaðs fólks.
» ÖBÍ hvetur til þess að við alla stafræna þróun verði frá upphafi unnið útfrá aðgengi fyrir öll.
13.
Önnur skólastig og stjórnsýsla menntamála
ÖBÍ fagnar þeirri framtíðarsýn að Ísland búi yfir framúrskarandi menntakerfi sem styðji við inngildingu, jöfnuð og farsæld og taki mið af fjölbreytileika samfélagsins. ÖBÍ tekur sérstaklega undir áherslur á inngildandi menntun, snemmtæka íhlutun, raunfærnimat og samþætta skólaþjónustu þvert á skólastig. Til að slíkar aðgerðir skili árangri þarf þó að tryggja að þær séu studdar með nægilegu fjármagni og samræmdri framkvæmd. Áhyggjuefni er að útgjaldarammi málefnasviðsins lækki á tímabilinu þrátt fyrir auknar og fjölbreyttari þjónustuþarfir, ekki síst hjá fötluðum börnum, ungmennum og fullorðnum.
» ÖBÍ leggur til að framlög til málaflokksins haldi raungildi sínu á tímabili áætlunarinnar.
Ekkert um okkur án okkar!
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka
Andrea Valgeirsdóttir
lögfræðingur ÖBÍ réttindasamtökum
Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtökum
Kjartan Þór Ingason
verkefnastjóri ÖBÍ réttindasamtökum
Rósa María Hjörvar
stafrænn verkefnastjóri ÖBÍ réttindasamtökum
Sigríður Hanna Ingólfsdóttir
félagsráðgjafi ÖBÍ réttindasamtökum
Sigurður Árnason
lögfræðingur ÖBÍ réttindasamtökum
Stefán Vilbergsson
verkefnastjóri ÖBÍ réttindasamtökum
Sunna Elvira Þorkelsdóttir
lögfræðingur ÖBÍ réttindasamtökum
Fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031
577. mál, þingsályktunartillaga.
Umsögn ÖBÍ, 4. maí 2026

