Vinnustofa Barna- og fjölskyldustofu

Farsældarlögin og börn með greiningar, langvinna sjúkdóma og/eða fatlanir. Áskoranir og tækifæri.
Barna- og fjölskyldustofa, í samvinnu við ÖBÍ og önnur hagsmunasamtök, bjóða til vinnustofu fimmtudaginn 28. maí, frá 12:30-15:00.
Markmið vinnustofunnar er að eiga samtal um farsældarlögin, varpa ljósi á upplifun foreldra barna með langvarandi stuðningsþarfir af innleiðingu laganna og greina áskoranir og tækifæri.
Vinnustofan verður haldin í Herkastalanum, Suðurlandsbraut 72.
Skráning á vinnustofu BOFS og ÖBÍ 28.05.2026
Nauðsynlegt er að skrá sig í gegn um skráningarform HÉR.


