Aðgengi

Nýjar leiðir í túlkun og textun á Listahátíð í Reykjavík

Listahátíð í Reykjavík leggur ríka áherslu á aðgengi og hefur unnið markvisst með aðgengishópi ÖBÍ að því að bæta upplifun og þátttöku allra gesta á hátíðinni.

Á Listahátíð í Reykjavík í ár verða kynntar nýjar lausnir í túlkun og textun sem miða að því að auka aðgengi að fjölbreyttri dagskrá hátíðarinnar enn frekar. Einnig verður hægt að nálgast raunsannar aðgengislýsingar um hvern viðburð og kynna sér dagskrána á auðlesnu máli.

Nokkrir valdir viðburðir verða táknmálstúlkaðir og í fyrsta sinn verður einnig hægt að óska eftir táknmálstúlki á viðburði í gegnum Hröð hönd. Leitast verður við að verða við þeim óskum eftir fremsta megni.

Þá verður í fyrsta sinn boðið upp á rauntímatextun á viðburðum þar sem talað mál er í fyrirrúmi. Verkefnið er unnið í samstarfi við tæknifyrirtækið Tiro, sem sérhæfir sig í sjálfvirkri talgreiningu fyrir íslenskt talmál. Lausnin umbreytir töluðu máli í ritaðan texta í rauntíma og verður í notkun á völdum viðburðum hátíðarinnar.

Gestir geta nálgast textunina í eigin síma með því að skanna QR-kóða sem verða aðgengilegir á öllum textuðum viðburðum.

Með þessum nýju lausnum heldur Listahátíð í Reykjavík áfram að þróa fjölbreyttari og aðgengilegri leiðir fyrir fólk til að njóta menningar og lista á eigin forsendum.

Opnunarhátíð Listahátíðar í Reykjavík

Opnunarhátíðin fer fram í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur 30. maí kl. 14:00.

Viðburðurinn verður bæði táknmálstúlkaður og textaður og er aðgangur ókeypis.

Frekari upplýsingar eru að finna um textaða viðburði.