
Sigurvegarar Nýsköpunarkeppni grunnskólanna voru kynntir á lokahófi sem fram fór á Sögutorgi í Sögu Háskóla Íslands á laugardaginn. Þar afhenti Halla Tómasdóttir, forseti Íslands og verndari Nýsköpunarkeppni grunnskólanna, verðlaunin. Meðal verðlaunahafa voru þær Hjördís Lilja Egilsdóttir og Stefania Szymanowska úr Njarðvíkurskóla sem báru sigur úr býtum í Mannréttindaflokki keppninnar.
Fyrr á árinu undirrituðu ÖBÍ réttindasamtök, NýMennt á Menntavísindasviði Háskóla Íslands fyrir hönd Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG og NKG+) og FabLab Hátúni 10C þriggja ára samstarfs- og styrktarsamning. Markmið samstarfsins er að auka vitund grunnskólabarna um málefni fatlaðs fólks, efla skilning á mikilvægi aðgengis og hvetja til inngildandi nýsköpunar.
Í ár var í fyrsta sinn kynntur sérstakur Mannréttindaflokkur innan keppninnar. Flokkurinn styður nemendur í þróun hugmynda sem tengjast málefnum fatlaðs fólks og hvetur unga hönnuði og frumkvöðla til að taka mið af fjölbreytileika samfélagsins strax á hugmyndastigi.
Alls bárust 502 hugmyndir í keppnina og komust 25 þeirra áfram í úrslit. Nemendur víðs vegar að af landinu komu saman í Háskóla Íslands dagana 28.–30. maí þar sem unnið var áfram með hugmyndirnar.
Sigurvegarar Mannréttindaflokksins voru þær Hjördís Lilja Egilsdóttir og Stefania Szymanowska úr 5. bekk Njarðvíkurskóla með hugmyndina „Bókin ykkar“. Hugmyndin felur í sér bók fyrir blinda og sjónskerta þar sem blindaletur kemur upp á sama tíma og hægt er að hlusta á textann. Verkefnið sýnir með skýrum hætti hvernig nýsköpun getur stuðlað að auknu aðgengi og þátttöku fyrir öll í samfélaginu.
ÖBÍ óskar Hjördísi Lilju og Stefaníu innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur og þakkar þeim fyrir sitt frábæra framlag til keppninnar.
Jafnframt vill ÖBÍ færa Nýsköpunarkeppni grunnskólanna og öllum aðstandendum keppninnar kærar þakkir fyrir einstaklega vel heppnaðan viðburð.

