
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um námsstyrki ÖBÍ réttindasamtaka fyrir vorið 2026.
ÖBÍ réttindasamtök veita fötluðu fólki styrki til að mennta sig. Markmiðið með námsstyrkjum ÖBÍ réttindasamtaka er að styrkja örorkulífeyristaka og einstaklinga á endurhæfingarlífeyri til formlegs náms sem greitt getur götu þess til atvinnu, sjálfstæðis og þátttöku.
-
- Um námsstyrki er að ræða og er þeim ætlað að koma til móts við námskostnað, svo sem skráningar- og þátttökugjöld.
- Aðeins er styrkt til eins námskeiðs, annar eða námsárs í senn.
- Umsækjendum er frjálst að sækja um oftar en einu sinni haldi þeir námi áfram, að því tilskyldu að um framvindu sé að ræða.
- Styrkupphæðir eru ákvarðaðar í hvert sinn í samræmi við umsóknir og fjárheimildir.
- Umsækjendur eru beðnir um að skila staðfestingu með umsókn á greiðslum vegna örorku eða endurhæfingar frá Tryggingastofnun.
- Úthlutunarnefnd rökstyður ekki ákvörðun í svarbréfi til umsækjenda.
- Mögulegt er að sækja um styrk til náms sem stundað hefur verið á úthlutunarárinu eða sem fyrirhugað er og staðfest umsókn liggur fyrir um.
Umsóknarfrestur til að sækja um námsstyrk á árinu 2026 rennur út þann 15. júlí. Við hjá ÖBÍ hvetjum þig til að hefja nám og öðlast nýja færni.

