Stjórnsýsla velferðarmálaUmsögn

Réttindavernd fatlaðs fólks

By 11. febrúar 2026júní 3rd, 2026No Comments
Á myndinni er hópur fólks á Ingólfstorgi á 1. maí 2025. Flest eru í hlýjum vetrarfötum og margir bera skilti. Í forgrunni situr brosandi karlmaður í hjólastól, klæddur dökkum fatnaði og með sólgleraugu. Hann heldur á fjólubláu skilti sem á stendur „RÉTTLÆTI“ ásamt merki ÖBÍ réttindasamtaka. Í kringum hann er fleira fólk. Sumir með kröfuskilti og sumir að tala saman eða fylgjast með. Stemningin á myndinni virðist samheldin og baráttuglöð, þar sem fjölbreyttur hópur fólks tekur þátt.

ÖBÍ telur frumvarpið, Réttindavernd fatlaðs fólks, fela í sér margt til bóta frá þeim lögum sem nú gilda. Þá hafa jákvæðar breytingar verið gerðar á frumvarpinu frá því að drög að því voru kynnt í samráðsgátt. ÖBÍ sér þó ástæðu til að ítreka mikilvægi nokkurra þátta þeirra athugasemda sem samtökin hafa gert á fyrri stigum.

1. 

Hlutverk réttindagæslu fyrir fatlað fólk

ÖBÍ ítrekar hve mikilvægt er að réttindagæslan sinni stuðningi við fatlað fólk á einstaklingsgrundvelli, einkum þá einstaklinga sem eru í viðkvæmastri stöðu. Minnt er á að fatlað fólk á í mun meiri hættu en aðrir á að verða fyrir mannréttindabrotum, misnotkun og ofbeldi. ÖBÍ hvetur stjórnvöld til að tryggja ætíð nægt fjármagn til að réttindagæslan geti sinnt þessu hlutverki af fullum mætti.

2. 

Persónulegir talsmenn og verkefni sýslumanns

Sem fyrr ítrekar ÖBÍ mikilvægi þess að gengið verði úr skugga um að hjá sýslumönnum sé í hvívetna unnið samkvæmt hugmyndafræði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) og að tryggt verði að starfsfólk sýslumanna fái fræðslu um samninginn og málefni fatlaðs fólks. Þá verður að tryggja að sýslumaður hafi nægt fjármagn og aðföng til að sinna hlutverkum sínum samkvæmt lögunum.

3. 

ÚRVEL verði falin verkefni undanþágunefndar

ÖBÍ ítrekar að mestu máli skipti að mannréttindi fatlaðs fólks séu virt þegar mál sem heyrt hafa undir undanþágunefnd eru annars vegar. Þau miklu vandamál sem verið hafa í tengslum við nauðung verða ekki leyst með því einu að auka skilvirkni í ákvarðanatöku. Verði af þessum áformum leggur ÖBÍ áherslu á að tryggð verði fullnægjandi þekking innan ÚRVEL svo mannréttindi fatlaðs fólks verði gætt til hins ítrasta. ÖBÍ telur að tryggja verði betur en verið hefur fjölbreytta þekkingu sérfræðiteymis, þ.m.t. þekkingu á mannréttindum og hugmyndafræði SRFF.

Einnig verði að tryggja aðkomu fatlaðs fólks að ferli ákvarðanatöku um undanþágu frá nauðung. Minnt er á að samkvæmt 3. mgr. 4. gr., SRFF skulu aðildarríkin, þegar þau undirbúa og beita löggjöf sinni og stefnu samningnum til framkvæmda og vinna að ákvarðanatöku um málefni fatlaðs fólks, hafa náið samráð og tryggja virka þátttöku fatlaðs fólks.

4. 

Undanþágur nauðung og undaþágur

ÖBÍ minnir á hve alvarlegt mannréttindabrot nauðung er í eðli sínu og að nauðung á grundvelli fötlunar telst til ólögmætrar mismununar. Að mati ÖBÍ á íslenska ríkið að róa öllum árum að því markmiði að útrýma beitingu nauðungar. Horfa má til reynslu Evrópuríkja sem lengra eru komin á þeirri vegferð.

ÖBÍ er reiðubúið til samráðs og samvinnu á öllum stigum þessa máls. ÖBÍ áskilur sér rétt til að koma á framfæri frekari athugasemdum á seinni stigum verði ástæða til.

Ekkert um okkur án okkar!

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ

Sigurður Árnason
lögfræðingur ÖBí


Réttindavernd fatlaðs fólks
311. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 11. febrúar 2026


ÖBÍ réttindasamtök (ÖBÍ) eru heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi. Hlutverk samtakanna er að koma fram fyrir hönd fatlaðs fólks í hverskyns hagsmunamálum.