
Adobe Stock
ÖBÍ réttindasamtök hafa til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku.
ÖBÍ vill koma á framfæri eftirfarandi athugasemdum, en að mati ÖBÍ er frumvarpið jákvætt til að jafna kostnað vegna drefingu raforku og þar með raforkukostnað heimila milli þéttbýlis og dreifbýlis.
Samkvæmt frumvarpinu hækkar raforkukostnaður meðalheimils í þéttbýli (m.v. ársnotkun 4.500 kílóvattstundir á ári) um 184 kr. á mánuði og á móti lækkar raforkukostnaður meðalheimilis í dreifbýli um 1.077 kr. miðað við sömu ársnotkun og heimilis í þéttbýli.
Í greinargerðinni kemur fram að um 25.000 heimili og fyrirtæki eru í dreifbýlisgjaldskrá hjá orkufyrirtækjum og gangi frumvarpið eftir mun raforkukostnaður þessara heimila og fyrirtækja lækka töluvert.
ÖBÍ treystir því að þessar hækkanir og lækkanir á raforkukostnaði muni ekki leiða hækkunar á verðlagi og þær aukatekjur sem ríkissjóður fær vegna hækkunar á raforkukostnaði í þéttbýli renni óskipt til lækkunar á sama kostnaði í dreifbýli.
ÖBÍ styður framgang þessa og telur að með þessu frumvarpi muni framfærslukostnaður fólks sem býr í dreifbýli og hefur lágar tekjur batna til muna.
Ekkert um okkur án okkar!
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka
Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtökum
Jöfnun kostnaðar við dreifingu á raforku (jöfnunargjald)
596. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 12. maí 2026

