
Fundarsalur Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf. Mynd: UN / SÞ
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) er alþjóðlegur mannréttindasamningur. Markmiðið með samningnum er einkum að tryggja að allt fatlað fólk njóti til fulls og til jafns við aðra allra mannréttinda og grundvallarfrelsis. Ísland fullgilti samninginn árið 2016 og hinn 12. nóvember 2025 var hann lögfestur.
ÖBÍ leggur áherslu á að Alþingi og ríkisstjórnin tryggi fulla innleiðingu á ákvæðum samningsins og að farið verði eftir ákvæðum hans í allri framkvæmd. ÖBÍ telur það vera mikilvægasta verkefnið þessa stundina á þeirri vegferð að efla mannréttindi fatlaðs fólks á Íslandi.
Valfrjáls bókun við SRFF hefur verið undirrituð af hálfu Íslands en ekki fullgilt. Að mati ÖBÍ er mikilvægt að fullgilda bókunina sem fyrst. Bókunin myndi gera fötluðu fólki sem telur brotið á réttindum sínum samkvæmt SRFF kleift að beina kvörtun til sérfræðinefndar Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Með fullgildingu bókunarinnar myndi ríkið stuðla að réttri framkvæmd á samningnum.
Málefni jafnréttis- og mannréttindamála heyra undir dómsmálaráðuneytið samkvæmt forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, sem tók gildi 15. mars 2025. SRFF heyrir þó, einn alþjóðlegra mannréttindasamninga, undir félags- og húsnæðismálaráðuneytið. Með því að aðskilja SRFF frá öðrum mannréttindasamningum telja samtökin hættu á að samningurinn verði fyrst og fremst túlkaður sem velferðar- og félagsþjónustusamningur, fremur en mannréttindasamningur.
Að mati ÖBÍ er mikil þörf á markvissri vitundarvakningu um SRFF, þ.m.t. um þá hugmyndafræði sem samningurinn byggir á og grundvallarhugtök hans. Almenn þekking á samningnum er að mati ÖBÍ mjög takmörkuð og einnig er þörf á vitundarvakningu innan opinbera geirans, þ.m.t. á sviðum félags- og heilbrigðismála. Auk hugmyndafræði samningsins er mikilvægt að kynna grundvallarhugtök hans, þ.m.t. skilgreiningu samningsins á fötlun skv. 2. mgr. 1. mgr. samningsins, viðeigandi aðlögun og algild hönnun sbr. 2. gr. Þá er 12. gr. samningsins um jafna viðurkenningu fyrir lögum grundvallar ákvæði í samningnum sem innleiða þarf og veita fræðslu um. Að auki telur ÖBÍ þörf á vitundarvakningu um lög um jafna meðferð á vinnumarkaði nr. 86/2018 og lög um jafna meðferð utan vinnumarkaðar nr. 85/2018, ekki síst hvað varðar réttindi fatlaðs fólks. Kærunefnd jafnréttismála fær mjög fá mál til meðferðar sem varða réttindi fatlaðs fólks.
Almennt er mikill skortur á tölfræðilegum upplýsingum og rannsóknum um stöðu fatlaðs fólks í samfélaginu á Íslandi. Að þessu leiti telur ÖBÍ ríkið ekki uppfylla skyldur sínar samkvæmt 31. gr. samningsins. Upplýsingar um stöðu fatlaðs fólks geta verið nauðsynlegar til að koma auga á hvar úrbóta er þörf til að tryggja mannréttindi þess. Árin 2023-2024 hófu stjórnvöld verkefni í tilraunaskyni um birtingu tölfræði um fatlað fólk sem síðar var lagt af og að mati ÖBÍ er það þróun í ranga átt sem jafnframt er andstæð 31. gr. SRFF.
Í 33. gr. SRFF er kveðið á um framkvæmd og eftirlit innan lands. Eftirlit ríkisins með framkvæmd og framfylgd sveitarfélaga á skyldum sínum gagnvart fötluðu fólki er að mati samtakanna ófullnægjandi. Það orsakar mikið ósamræmi í þjónustu við fatlað fólk á milli sveitarfélaga. Samkvæmt 33. gr. skal ríkið tilnefna, í samræmi við stjórnskipulag sitt, eina miðstöð eða fleiri innan stjórnsýslunnar vegna mála er varða framkvæmd samningsins en sú skylda hefur ekki verið uppfyllt.
ÖBÍ bendir á að lögræðislög nr. 71/1997 í núverandi mynd uppfylla ekki skilyrði SRFF og telur mikilvægt að heildarendurskoðun á lögunum fari fram hið fyrsta til samræmis við 12. gr. samningsins.
Að lokum vill ÖBÍ gera athugasemd við að allt of oft verður togstreita á milli ríkis og sveitarfélaga til þess að fatlað fólk fær ekki réttindi sín í formi lögbundinnar þjónustu eða þarf að bíða eftir henni til langs tíma. Skýrt dæmi um þetta er togstreita á milli ríkis og sveitarfélaga um fjármögnun búsetuúrræða fyrir fatlað fólk.
ÖBÍ er reiðubúið til samráðs og samvinnu á öllum stigum þessa máls.
Ekkert um okkur án okkar!
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ
Andrea Valgeirsdóttir
lögfræðingur ÖBÍ
Sigurður Árnason
lögfræðingur ÖBÍ
Undirbúningur allsherjarúttektar Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttindamála hafinn
Mál nr. S-21/2026. Dómsmálaráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 27. febrúar 2026
ÖBÍ réttindasamtök (ÖBÍ) eru heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi. Hlutverk samtakanna er að koma fram fyrir hönd fatlaðs fólks í hverskyns hagsmunamálum.

