
Austurbæjarskóli. Mynd: Wikimedia Commons
ÖBÍ réttindasamtök taka undir mikilvægi þess að námsmat í grunnskólum sé skýrt, aðgengilegt og styðji við nám allra barna. Samtökin leggja þó áherslu á að við breytingar á námsmati verði sérstaklega tryggt að réttindi og þarfir fatlaðra barna séu höfð að leiðarljósi, í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Ekkert um okkur án okkar!
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka
Andrea Valgeirsdóttir
lögfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka
Áform um breytingar á námsmatshluta aðalnámskrár grunnskóla
Mál nr. S-94/2026. Mennta- og barnamálaráðuneytið
Umsögn ÖBÍ, 3. júní 2026

