Málefni barnaUmsögn

Skipan nefndar til að kanna aðbúnað barna sem vistuð voru fyrir atbeina stjórnvalda á einkaheimilum

By 5. júní 2026No Comments

„ÖBÍ leggur til að öll mál hljóti efnislegt mat og að frásagnir einstaklinga hafi sjálfstætt vægi, óháð umfangi eða tiltækum gögnum.“

ÖBÍ réttindasamtök fagna því að lagt sé fram frumvarp sem hefur það markmið að varpa ljósi á aðbúnað barna sem vistuð voru á einkaheimilum fyrir atbeina stjórnvalda. Frumvarpið snertir mikilvægt mannréttindamál og er mikilvægt skref í átt að uppgjöri við fortíðina og eflingu réttinda barna. Samtökin styðja meginstefnu frumvarpsins og telja brýnt að farið verði í heildstæða og sjálfstæða rannsókn á málinu.

ÖBÍ leggur áherslu á að taka verði sérstaklega mið af stöðu fatlaðra barna. Reynslan sýnir að fötluð börn hafa verið í sérstaklega viðkvæmri stöðu í vistun, oft með takmarkaða rödd, aukna hættu á ofbeldi og minni aðgang að réttarúrræðum.

Aðgengi og þátttaka

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að einstaklingar geti komið reynslu sinni á framfæri við nefndina. ÖBÍ telur að það eitt og sér tryggi ekki raunverulegt aðgengi fyrir fatlað fólk. Mikilvægt er að tryggt sé aðgengi að þátttöku, boðið sé upp á viðeigandi stuðning og aðlögun

Stuðningur við þolendur

ÖBÍ telur það mikilvægan annmarka að sálfræðiaðstoð sé aðeins heimild bundin reglugerð. Setja þarf skýra lagaskyldu um áfallamiðaðan stuðning og viðeigandi og aðlagaða þjónustu fyrir fatlaða einstaklinga.

Val á málum til rannsóknar

Ákvæði um að meta mál út frá umfangi, fjölda og líkum á árangri geta leitt til þess að einstaklingar falli utan rannsóknar. ÖBÍ leggur til að öll mál hljóti efnislegt mat og að frásagnir einstaklinga hafi sjálfstætt vægi, óháð umfangi eða tiltækum gögnum.

Tímamörk rannsóknar

ÖBÍ telur að þótt þau tímamörk kunni að eiga sér málefnalegar skýringar sé mikilvægt að útiloka ekki sjálfkrafa atvik sem kunna að hafa átt sér stað síðar.

Um gagnaöflun og persónuvernd

ÖBÍ bendir á að enn hefur ekki farið fram formlegt mat á áhrifum á persónuvernd, sem er áhyggjuefni í svo viðkvæmu verkefni. Sérstaklega þarf að tryggja vernd viðkvæmra heilsufarsupplýsinga.

ÖBÍ telur frumvarpið mikilvægt skref en leggur til að það verði styrkt með skýrari ákvæðum um sérstaka vernd og rannsókn á aðstæðum fatlaðra barna, aðgengi og þátttöku og lagaskyldu um stuðning við þolendur. Að öðrum kosti er hætta á að sá hópur sem hefur verið í viðkvæmri stöðu verði áfram ósýnilegur í uppgjöri fortíðarinnar. Með þessum breytingum telja samtökin að frumvarpið muni betur uppfylla markmið sín og vera í samræmi við alþjóðlegar mannréttindaskuldbindingar Íslands, þar á meðal samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og Barnasáttmálann.

Ekkert um okkur án okkar!

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka

Andrea Valgeirsdóttir
lögfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka


Skipan nefndar til að kanna aðbúnað barna sem vistuð voru fyrir atbeina stjórnvalda á einkaheimilum
684. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 5. júní 2026