Loading Viðburðir

« All Viðburðir

Kvenréttindadagurinn á Hallveigarstöðum

19. júní @ 16:00 - 18:00
Konur að mótmæla

Kvenréttindadagurinn verður haldinn hátíðlegur á Hallveigarstöðum fimmtudaginn 19. júní og hefst dagskráin kl. 16:00.

Við þetta tækifæri verður ný lyfta á Hallveigarstöðum formlega vígð. Með tilkomu hennar eykst aðgengi að húsinu til muna og skapast betri aðstæður fyrir alla gesti.

Jafnframt verður nýtt tölublað tímarits Kvenréttindafélags Íslands kynnt, en útgáfa þess á sér langa sögu. Fyrsti árgangur blaðsins kom út árið 1951 og er tímaritið meðal elstu tímarita landsins sem enn eru gefin út. Í því birtast greinar um konur, kvenréttindi, kvenfrelsi og kvennamenningu og eru þær ómetanleg heimild um samfélagssögu síðustu áratuga.

Öll eru hjartanlega velkomin að fagna þessum degi og merkum áföngum í sögu kvenréttindabaráttunnar.

Nánari dagskrá birt síðar.

Upplýsingar

  • Dagsetning: 19. júní
  • Tími:
    16:00 - 18:00
  • Viðburðir Flokkur: