
Frá Gleðigöngunni 9. ágúst 2025. Mynd: ÖBÍ / Ruth Ásgeirsdóttir
ÖBÍ réttindasamtök taka aftur þátt í Hinsegindögum í ár með því markmiði að stuðla að valdeflingu og bættu aðgengi fyrir hinsegin fatlað fólk sem og aukinni vitundarvakningu í samfélaginu.
Það gleður okkur að segja frá því að Strætó mun aftur vera með skynseginvænan vagn í göngunni, líkt og í fyrra.
ÖBÍ þakkar Strætó kærlega fyrir framlag sitt sem stuðlar að bættu aðgengi fjölbreyttra hópa að regnboganum.
Nánari upplýsingar um staðsetningu og skráningu í vagninn má nálgast í gegnum hlekkinn hér að neðan:

