
ÖBÍ réttindasamtök, ÖBÍ, fagna fyrirætlunum um útgáfu reglugerðar um aðstoðarmannakort fatlaðs fólks[PDF] enda hefur óvissa ríkt lengi um hver eigi að bera kostnað við þátttöku fatlaðs fólks í menningarlífi. Oft á tíðum hafa fatlaðir einstaklingar þurft að greiða fullt verð fyrir aðstoðarmann sem verður að fylgja viðkomandi vilji þeir njóta viðburða.
Reglugerðardrögin eru jákvæð skref í rétta átt en þó þarf að skerpa á ákveðnum atriðum.
1.
Aldursviðmið fyrir útgáfu aðstoðarmannakorta
Í drögunum segir að kortin séu skilríki sem sveitarfélög gefa út til fatlaðs fólks frá 15 ára aldri, á grundvelli mats á stuðningsþörf viðkomandi. Óljóst er af hverju kortin gildi fyrst frá 15 ára aldri. Tekið er undir kröfu Barnaheilla um að kortin gildi frá 5 ára aldri enda hafi börn frá unga aldri þróað með sér smekk og áhuga á ákveðnum viðburðum eins og leiksýningum og tónleikum.
2.
Gildissvið aðstoðarmannakorta
Kortin eiga að gilda vegna þjónustu sem veitt er og á viðburðum á vegum ríkis og sveitarfélaga þar sem greiða þarf aðgangseyri. Langflestir viðburðir sem greiða þarf inn á eru þó haldnir af einkaaðilum. Stjórnvöld þurfa að komast að samkomulagi við viðburðahaldara svo að aðstoðarmannakort fatlaðs fólks gildi með sama hætti hjá þeim. Sátt þarf að ríkja um að sömu viðmið gildi alls staðar.
3.
Tengsl korts við handhafa en ekki tiltekinn aðstoðarmann
Jákvætt er að aðstoðarmannakort verði ekki bundið tilteknum aðstoðarmanni heldur sé því ætlað að vera í vörslu handhafa sem framvísi því fyrir hvern þann sem er honum til aðstoðar hverju sinni.
4.
Aðgangseyrir og jafnræði í aðgengi að viðburðum
Að sama skapi er réttlátt að handhafi greiði aðgangseyri fyrir sjálfan sig, enda kjósi hann að sækja viðburðinn, en greiði ekki fyrir aðstoðarmanninn sem þarf að fylgja með hvort sem hann hefur áhuga á viðburðinum eða ekki. Aftur á móti þarf fatlað fólk oft að sætta sig við takmarkað sætaframboð og þarf þá jafnvel að sitja á ákveðnum stað meðan aðrir gestir geta valið hvar þeir sitja. Oft er útsýni mjög skert og möguleikar á að njóta viðburðarins með vinum og vandamönnum eru ekki til staðar. Þá er eðlilegt að hvorki fatlaði einstaklingurinn né aðstoðarmaðurinn greiði aðgangseyri.
5.
Skilgreining aðstoðarmanns
Athugasemd er gerð við að aðstoðarmaður sé skilgreindur sem einstaklingur sem ráðinn er til starfs sem unnið er í þágu lögákveðinnar félagsþjónustu við fatlað fólk. Fatlaðir einstaklingar sem metnir hafa verið með stuðningsþörf fá ekki alltaf aðstoðarfólk frá sveitarfélaginu. Þeir þurfa oft og tíðum að treysta á aðstoð sinna nánustu sem ekki eru á samningi. Sumir þurfa líka á aðstoð fleiri en eins aðstoðarmanns að halda hverju sinni og kortið þarf að endurspegla það.
6.
Aðgengilegar upplýsingar og auðlesið efni
Að lokum er tekið undir sjónarmið Átaks, félags fólks með þroskahömlun, um að upplýsingar um kortin þurfi að vera skýrar og aðgengilegar og að leiðbeiningar verði gefnar út á auðlesnu máli.
Ekkert um okkur án okkar!
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka
Stefán Vilbergsson
verkefnastjóri ÖBÍ
Drög að reglugerð um aðstoðarmannakort fatlaðs fólks
Mál nr. S-63/2026. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Umsögn ÖBÍ, 24. júlí 2026

