
ÖBÍ réttindasamtök minnast Inga Hans Ágústssonar, sem lést 10. júlí sl.
Ingi Hans sat um árabil í stjórn ÖBÍ og gegndi formennsku í HIV Ísland. Hann beitti sér af einlægni og festu fyrir bættum réttindum fatlaðs fólks. Jafnframt átti hann langan og farsælan starfsferil hjá Vin dagsetri fyrir fólk með geðraskanir.
ÖBÍ þakkar Inga Hans fyrir mikilvægt framlag til réttindabaráttu fatlaðs fólks og vottar fjölskyldu og aðstandendum innilega samúð.

