Málefni barnaUmsögn

Áform um frumvarp til laga um aldursmörk fyrir aðgengi barna að samfélagsmiðlum

By 20. júlí 2026ágúst 19th, 2026No Comments

ÖBÍ réttindasamtök fagna því að stjórnvöld vinni að aukinni vernd barna og ungmenna í stafrænu umhverfi og styðja markmið um að draga úr skaðlegum áhrifum samfélagsmiðla á börn. Samtökin taka undir að mikilvægt sé að bregðast við þeirri áhættu sem getur fylgt notkun samfélagsmiðla, svo sem áreitni, einelti, misnotkun persónuupplýsinga og útsetningu fyrir skaðlegu efni.

ÖBÍ vill þó leggja áherslu á að áhrif samfélagsmiðla og stafrænnar tækni á fötluð börn og ungmenni eru margþætt. Rannsóknir og reynsla fatlaðs fólks sýna að sama tækni sem getur skapað áhættu er jafnframt mikilvæg forsenda þátttöku, félagslegra tengsla, upplýsingamiðlunar og sjálfstæðis. Fyrir mörg fötluð börn, börn með langvarandi veikindi, börn sem glíma við skólaforðun eða búa við félagslega einangrun eru samfélagsmiðlar og önnur stafræn samskipti mikilvæg leið til að viðhalda tengslum við jafnaldra, taka þátt í samfélagsumræðu og efla tilfinningu um að tilheyra.

Við frekari vinnslu frumvarpsins þarf því að gæta sérstaklega að því að fyrirhugaðar reglur leiði ekki til aukinnar einangrunar eða skerðingar á þátttöku fatlaðra barna. Áhersla á vernd þarf ávallt að fara saman við rétt barna til þátttöku, upplýsinga, tjáningar og aðgengis, í samræmi við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

ÖBÍ telur jákvætt að í áformunum sé lögð áhersla á meðalhóf og að við frekari útfærslu verði horft til réttinda barna. Samtökin leggja þó áherslu á að áhrif fyrirhugaðra aldursmarka á fötluð börn og ungmenni verði sérstaklega metin. Jafnframt þarf að tryggja að allar leiðir til aldursstaðfestingar, fræðslu og framkvæmdar reglna taki mið af ólíkum fötlunum og mismunandi stuðningsþörfum barna.

ÖBÍ tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í samráðsgögnunum um að lagasetning ein og sér muni ekki tryggja öruggara stafrænt umhverfi. Samhliða lagasetningu þarf að ráðast í markvissar aðgerðir á sviði fræðslu, miðlalæsis, netöryggis og gagnrýninnar hugsunar. Mikilvægt er að tryggja að fötluð börn hafi jafnan aðgang að slíkri fræðslu. Skortur á aðgengilegri fræðslu getur aukið varnarleysi barna í stafrænu umhverfi.

Að lokum bendir ÖBÍ á nauðsyn þess að fötluð börn, ungmenni og samtök fatlaðs fólks verði virkir þátttakendur í áframhaldandi mótun lagafrumvarpsins. Mikilvægt er að reynsla þeirra og sjónarmið séu hluti af stefnumótun og framkvæmd frá upphafi til að tryggja að markmið um aukna vernd náist án þess að skerða aðgengi, þátttöku eða mannréttindi þess hóps barna sem þegar býr oftar en aðrir við einangrun og jaðarsetningu.

Ekkert um okkur án okkar!

 

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka

Andrea Valgeirsdóttir
lögfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka

 


Mál nr. S-132/2026 [Fjölskyldumál] Mennta- og barnamálaráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 20. júlí 2026