AðgengiFrétt

Aðgengi að Menningarnótt

Reykjavíkurborg hefur sent frá sér eftirfarandi upplýsingar um aðgengismál á Menningarnótt:

Á Menningarnótt verður hluti miðborgarinnar lokaður allri bílaumferð til tryggja öryggi gangandi vegfarenda, og verða engar undantekningar gerðar á því.

Er þó leitast við, eftir bestu getu, að tryggja aðgengi allra að hátíðarsvæðinu en meðfylgjandi er kort af götulokunum.

Bílastæði fyrir fatlað fólk

Bílastæði fyrir fatlað fólk eru staðsett á eftirfarandi stöðum:

  • Fyrir framan Skúlagötu 6, sérstakt svæði sem eingöngu verður nýtt undir bílastæði fyrir P merkta bíla.
  • Við Tækniskólann, hluti stæðanna verður nýttur undir P merkt stæði.
  • Í eftirfarandi bílastæðahúsum eru sérmerkt bílastæði fyrir fatlað fólk
    • Bílakjallari Ráðhúss Reykjavíkur, frá klukkan 07:00 – 11:00 og 16:00 – 00:00. Athugið að ekki verður hægt að nota lyftu ráðhúss til að komast í bílakjallarann eftir kl. 18.00.
    • Vesturgötu 7, frá kl. 07.00 – 00.00.
    • Vitatorgi, Lindargötu (aðgengi frá Hverfisgötu)
    • Stjörnuporti, Laugavegi 94, klukkan 07:00 – 00:00.
    • Hörpu, frá klukkan 13:00 – 21.00 (hægt er að yfirgefa bílakjallarann eftir kl. 21.00)
  • Hjólastólapallar verða fyrir framan sviðin á tónleikunum í Hljómskálagarði og á Arnarhóli til að tryggja aðgengi fyrir öll á tónleikunum.

Skynrými

Skynrými fyrir fólk með skynúrvinnsluvanda verður staðsett í safnaðarheimili Fríkirkjunnar í Reykjavík við Laufásveg 13. Skynrýmið verður opið frá klukkan 15:00 til 20:00.

Pant akstursþjónusta fatlaðs fólks

Hægt er að panta akstur á vefnum eða í síma 540 2727.

Akstur er frá klukkan 07:30–01:00
Seinasta ferð er klukkan 00:45.

  • Almennur opnunartími á laugardögum er klukkan 10:00–14:00.
  • Fyrir klukkan 10:00 og eftir klukkan 14:00 er aðeins hægt að panta stakar ferðir, afpanta ferðir og fá svör við brýnum erindum.
  • Hægt er að bóka ferð með tveggja tíma fyrirvara á Menningarnótt eins og vani er.
  • Farþegar eru vinsamlegast beðnir um að bóka ferðir með fyrirvara til að auðvelda skipulagningu akstursins.

Akstursþjónustan stöðvar á eftirfarandi stöðum til þess að skila af sér og taka á móti farþegum:

  • Skólavörðuholti – bílastæði við Hallgrímskirkju
  • Við BSÍ 
  • Sjávarútvegsráðuneyti – bílastæði á Skúlagötu 4
  • EKKI er stöðvað við Ráðhúsið

Viðbúið er að einhver seinkun kunni að verða sökum umferðar. Farþegar eru beðnir um að sýna þolinmæði og skilning gagnvart því.

 

Salernisaðstaða

Salerni fyrir fatlað fólk eru staðsett á eftirfarandi stöðum:

  • Við Arnarhól (til hliðar við bílastæðahús Seðlabankans)
  • Ingólfsstræti, við Arnarhól
  • Í Hljómskálagarði
  • Á bílastæði við Tækniskólann
  • Hverfisgötu 23 (við Lýðveldisgarð)
  • Í Ráðhúsinu – opið til klukkan 18:00
  • Í Hörpu – opið til klukkan 22:00
  • Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi – opið til klukkan 22:00

Almenningssamgöngur

Vegna götulokana verður BSÍ endastöð niður í bæ fyrir flestar leiðir um daginn – til um 15:00.

Eftir um kl. 15:00 tekur Skúlagata við sem endastöð.

Nánari upplýsingar um þjónstu strætó er að finna á heimsíðu strætó – Þjónusta strætó á Menningarnótt