AðgengiStjórnsýsla velferðarmálaSveitarfélögUmsögn

Breyting á reglugerð um framkvæmdaleyfi með síðari breytingum

By 31. ágúst 2026No Comments
Skurðgrafa

„ … tryggt verði aðgengi fatlaðs fólks meðan á framkvæmd stendur, þar á meðal varðandi hávaða, loftmengun og aðgengi hreyfihamlaðs, blinds og sjónskerts fólks. “

ÖBÍ lítur svo á að reglugerðardrögin feli í sér ýmsar jákvæðar áherslur, en leggur þó til tillögur til frekari úrbóta.

Í áætlunum sveitarfélaga er mikil áhersla lögð á þéttingu byggðar og breytingar á samskiptakerfum, en þá hefur skýrt komið í ljós að löggjöf og eftirlit með uppbyggingu í grónum hverfum nægir ekki til að vernda íbúa fyrir aðgengishömlum og skertum lífsgæðum sem fylgja framkvæmdinni. Beinast liggur við að benda á stórfelldar framkvæmdir sem standa yfir í Hamraborg í Kópavogi, á Fannborgarreit og Traðarreit vestur, sem voru heimilaðar þrátt fyrir mikla andstöðu íbúa, notendaráðs bæjarins og ÖBÍ. Íbúar á reitnum munu búa við skert aðgengi að heimilum sínum, loft- og hávaðamengun og grjótkast næstu árin.

Reglugerðardrögin virðast almennt styrkja tengsl framkvæmdaleyfa við lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og þannig stuðla að aukinni vernd vegna áhrifa framkvæmda á heilbrigði fólks, loftgæði og umhverfi. Samt sem áður er ámælisvert að lagt sé til að heimilt verði í fleiri tilvikum að afgreiða framkvæmdaleyfi án deiliskipulags og mögulega án grenndarkynningar, sem skerðir möguleika fólks á að koma athugasemdum sínum á framfæri og koma að ákvörðunartöku.

Þó að leita eigi til viðeigandi umsagnaaðila fyrir framkvæmdir sem geta haft áhrif á líf fólks er ekki er ljóst hvaða aðilar eiga að teljast viðeigandi í því sambandi. Hætta er því á að fólkið sem mestu máli skiptir að skerðing á lífsgæðum verði sem minnst við framkvæmdir, það er fatlað fólk og sjúklingar, verði þá út undan. Umfjöllun í aðalskipulagi kemur engan veginn í staðinn fyrir grenndarkynningu, þar sem hægt er að spyrja spurninga og leggja fram athugasemdir. Margt fólk á erfitt með að kynna sér prentað mál þó svo að það eigi hagsmuna að gæta. Lýðræðisleg þátttaka er ekki bundin við það að kynna sér greinargerðir.

Hér að neðan eru tillögur ÖBÍ að breytingum á ákvæðum svo að þau samræmist enn betur markmiðum laga nr. 111/2021 um áhrif framkvæmda á viðkvæma hópa á framkvæmdartíma.

Athugasemdir við 2. gr. breytingarreglugerðar

ÖBÍ leggur til að bætt verði nýjum staflið við 2. gr. reglugerðar nr. 772/2012:

„Tryggja að leyfisskyldar framkvæmdir fái ekki leyfi nema að fengnu umhverfismati sem staðfestir óveruleg áhrif framkvæmdar á fatlað fólk og aðra viðkvæma hópa, þar á meðal hreyfihamlað fólk, astma- og ofnæmissjúklinga og fólk sem býr við umhverfistengdar heilsuraskanir.“

Athugasemdir við 5. gr. reglugerðardraga

ÖBÍ leggur til eftirfarandi viðbætur (undirstrikaðar) og brottfellingar (yfirstrikaðar) á 5. gr. breytingarreglugerðar (8. gr. reglugerðar).:

„Þar sem framkvæmdir eru fyrirhugaðar og deiliskipulag liggur ekki fyrir getur sveitarstjórn veitt framkvæmdaleyfi að undangenginni grenndarkynningu sé um að ræða framkvæmd sem er í samræmi við aðalskipulag og í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Þegar framkvæmd fer fram í eða við byggð, opin svæði, gönguleiðir, þjónustu eða samgöngumannvirki skal framkvæmdaaðili gera grein fyrir því hvernig tryggt verði aðgengi fatlaðs fólks meðan á framkvæmd stendur, þar á meðal varðandi hávaða, loftmengun og aðgengi hreyfihamlaðs, blinds og sjónskerts fólks. Að auki skal sveitarstjórn leita umsagna viðeigandi umsagnaraðila, svo sem notendaráðs fatlaðs fólks, áður en tekin er afstaða til útgáfu framkvæmdaleyfis. Um grenndarkynningu fer skv. 44. gr. skipulagslaga með þeim undantekningum sem þar eru tilgreindar. Heimilt er að falla frá grenndarkynningu ef gerð er grein fyrir framkvæmdinni og fjallað ítarlega um hana í aðalskipulagi. Upplýsingar um framkvæmdaleyfisskyldar framkvæmdir sem eru kynntar almenningi skulu vera birtar samkvæmt aðgengisstöðlum með samantekt á auðlesnu máli um áhrif framkvæmdarinnar og þær mótvægisaðgerðir sem fyrirhugaðar eru.

Athugasemdir við 7. gr. breytingarreglugerðar

ÖBÍ leggur til nýjar málsgreinar í 10. gr. reglugerðar:

„Þegar framkvæmd fer fram í eða við byggð, opin svæði, gönguleiðir, þjónustu eða samgöngumannvirki skal framkvæmdaaðili gera grein fyrir því hvernig tryggt verði aðgengi fatlaðs fólks meðan á framkvæmd stendur.

Skal sérstaklega gera grein fyrir:
a. aðgengilegum hjáleiðum,
b. bráðabirgðarömpum,
c. merkingum,
d. aðkomu neyðarþjónustu,
e. bílastæðum hreyfihamlaðra.

Við ákvörðun skilyrða framkvæmdaleyfis skal sérstaklega meta áhrif framkvæmda á:
a. heilbrigðisstofnanir,
b. hjúkrunarheimili,
c. búsetuúrræði fatlaðs fólks,
d. endurhæfingarstofnanir,
e. skóla.

Heimilt er að binda framkvæmdaleyfi skilyrðum: um sérstakar rykvarnir, vatnsúðun, hreinsun umferðarleiða og aðrar ráðstafanir til að draga úr svifryki og loftbornum ögnum frá framkvæmd.“

Ekkert um okkur án okkar.

Með vinsemd og virðingu,

Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ

Stefán Vilbergsson, verkefnastjóri ÖBÍ


Breyting á reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012, með síðari breytingum
Mál nr. S-149/2026. [Húsnæðis- og skipulagsmál]. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 31. ágúst 2026