Konur og kvárOfbeldiRéttarkerfiUmsögn

Drög að aðgerðaáætlun gegn mansali

By 4. september 2026september 7th, 2026No Comments

ÖBÍ fagnar gerð aðgerðaráætlunar gegn mansali.

Fatlað fólk, og sér í lagi fötluð börn, konur og stúlkur, er í mun meiri hættu á að verða fyrir ofbeldi og misneytingu en ófatlað fólk. ÖBÍ minnir á skuldbindingar íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF), sbr. lög nr. 80/2925 einkum 16. gr. (frelsi frá misnotkun, ofbeldi og misþyrmingum), 6. gr. (fatlaðar konur) og 7. gr. (fötluð börn).

Í áætluninni er ekki að finna sérstaka tilvísun til stöðu fatlaðs fólks eða réttinda þeirra.

ÖBÍ leggur til að í fræðslu til lögreglu, fagfólks og annarra viðkomandi verði tryggð sértæk þekking á stöðu fatlaðs fólks gagnvart mansali og hvernig bera megi kennsl á fatlaða þolendur einkum fatlaðar konur og stúlkur.

Þegar úrræði fyrir fórnarlömb mansals eru útfærð og upplýsingar veittar er mikilvægt að tryggja að þau séu aðgengileg fötluðu fólki, þ.m.t. með tilliti til aðgengilegs húsnæðis, stafræns aðgengis, táknmálstúlkunar, auðlesins efnis o.fl. Að öðrum kosti kann fatlað fólk að vera útilokað frá vernd áætlunarinnar.

ÖBÍ leggur til að gert verði ráð fyrir samráði við hagsmunasamtök fatlaðs fólks og aðkoma fatlaðs fólks tryggð þegar við á.

ÖBÍ er reiðubúið til samráðs og samvinnu á öllum stigum þessa máls.

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ

Sunna Elvira Þorkelsdóttir
lögfræðingur ÖBÍ

Sigurður Árnason
lögfræðingur ÖBÍ


Drög að aðgerðaáætlun gegn mansali
Mál nr. S-154/2026. [Almanna- og réttaröryggi]. Dómsmálaráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 4. september 2026


ÖBÍ réttindasamtök (ÖBÍ) eru heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi. Hlutverk samtakanna er að koma fram fyrir hönd fatlaðs fólks í hverskyns hagsmunamálum.