Flóttafólk og innflytjendurStjórnsýsla velferðarmálaUmsögn

Drög að reglugerð um skilgreiningu hugtaksins „ósanngjörn byrði á kerfi félagslegrar aðstoðar“

By 22. september 2026No Comments
„Hópur fólks situr í röðum í sal og horfir fram á við, líklega á fyrirlestur. Myndin er tekin aftan frá og sýnir fólk af ólíkum aldri, þjóðerni og kyni í . áhorfendastæðum.“

ÖBÍ telur að reglugerðardrögin verndi ekki fatlað fólk með fullnægjandi hætti. Að mati samtakanna eru drögin til þess fallin að hindra komu og dvöl fatlaðs fólks frá EES ríkjum til landsins meira en annarra. Hafa ber í huga að fatlað fólk hefur mun meiri þörf fyrir félagslega aðstoð en aðrir og hefur almennt mun minni möguleika til að afla sér framfærslu. ÖBÍ minnir á lög nr. 80/2025 um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) og bann við mismunun á grundvelli fötlunar, þ.m.t. í 5. gr. samningsins. ÖBÍ telur þörf á frekari upplýsingum um áhrif draganna á einstaklinga og samráði um málið. ÖBÍ er reiðubúið til samráðs og samvinnu á öllum stigum þess.

Athugasemdir við 3. gr.

Í 3. gr. reglugerðardraganna eru settir fram þættir sem sveitarfélögum ber að taka tillit til þegar mat er framkvæmt á því hvort dvöl EES- eða EFTA-borgara geti talist ósanngjörn byrði á kerfi félagslegrar aðstoðar. Í upplýsingum um málið í samráðsgátt segir að auki: „Matið skal vera heildstætt og einstaklingsbundið og skulu skilgreindir þættir 3. gr. reglugerðarinnar túlkaðir viðkomandi einstaklingi í hag.“ Í reglugerðardrögunum sjálfum kemur þó hvergi fram að þættir 3. gr. skuli túlkaðir viðkomandi einstaklingi í hag. Án þess hafa þessi orð ekkert gildi og hætta er á að greinin verði túlkuð á gagnstæðan veg. Því er nauðsynlegt að orðunum verði bætt í 3. gr. reglugerðarinnar.

Í 2. tölul. 1. mgr. 3. gr. draganna er kveðið á um að við mat á ósanngjarnri byrði skuli taka tillit til persónulegra aðstæðna, þar á meðal „fötlunar, vinnufærni, heilsufars [og] atvinnumöguleika“. Þá er í 4. tölul. litið til líkna á að viðkomandi geti staðið undir eigin framfærslu.

ÖBÍ telur að kveða þurfi mun skýrar á um vernd fatlaðs fólks og leggur til að við bætist ákvæði um að fötlun eða skert starfsgeta skuli aldrei vera grundvöllur þess að einstaklingur teljist ósanngjörn byrði á kerfi félagslegrar aðstoðar.

Athugasemdir við 5. gr.

Samkvæmt 3. mgr. 5. gr. draganna er það Útlendingastofnun sem tekur ákvörðun um hvort einstaklingur teljist ósanngjörn byrði á kerfi félagslegrar aðstoðar og áhrif þess á dvalarrétt. ÖBÍ telur mikilvægt að mat sem varðar þörf fyrir félagslega aðstoð sé framkvæmt af aðila á vettvangi félagsmála fremur en útlendingamála enda krefst matið þekkingar á málefnum fatlaðs fólks.

Athugasemdir við 6. gr.

Í 6. gr. eru taldir upp þeir einstaklingar sem ekki teljast ósanngjörn byrði. Þar þarf að sama skapi að kveða skýrar á um að fötlun og skert starfsgeta skuli aldrei vera grundvöllur þess að einstaklingur teljist ósanngjörn byrði á kerfi félagslegrar aðstoðar.

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ

Sigurður Árnason
lögfræðingur ÖBÍ


Drög að reglugerð um skilgreiningu hugtaksins „ósanngjörn byrði á kerfi félagslegrar aðstoðar“
Mál nr. S-166/2026. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 22. september 2026


ÖBÍ réttindasamtök (ÖBÍ) eru heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi. Hlutverk samtakanna er að koma fram fyrir hönd fatlaðs fólks í hvers kyns hagsmunamálum.