HúsnæðismálStjórnsýsla velferðarmálaUmsögn

Sveitarstjórnarlög

By 29. september 2026október 12th, 2026No Comments
Loftmynd af Hafnarfirði.

ÖBÍ réttindasamtök taka undir markmið frumvarpsins um að skipulag og starfsaðstæður sveitarfélaga séu þannig að þau geti sjálf borið ábyrgð á framkvæmd verkefna sem þeim er falið að sinna. Eitt mikilvægasta lögbundna verkefni sveitarfélaga er þjónusta við fatlað fólk. Því þurfa sveitarfélög að setja sér skýrar reglur, viðhafa virkt samráð og búa yfir nægum stjórnsýslu- og fjárhagslegum burðum.

Mikilvægt er að sveitarstjórnarlög taki mið af þeirri meginreglu að fatlað fólk skuli eiga rétt á fullri og virkri þátttöku í samfélaginu í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) sem lögfestur var haustið 2025 með lögum nr. 80/2025.

ÖBÍ leggur til að í markmiðsákvæði frumvarpsins eða almenn ákvæði um stjórnsýslu sveitarfélaga verði bætt við:

„Við framkvæmd laga þessara skulu sveitarfélög gæta að mannréttindum og jafnri þátttöku allra íbúa, þar með talið réttindum fatlaðs fólks samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.“

Samráð við íbúa og aðgengi

Í frumvarpinu er fjallað almennt um að sveitarstjórnir skuli leitast við að tryggja íbúum tækifæri til þátttöku, m.a. með skilgreindum samráðsferlum og virkri upplýsingamiðlun á meðan mál eru til meðferðar, sbr. 117. og 118. gr. frumvarpsins. Þrátt fyrir þessi jákvæðu skref vantar skýrari og bindandi ákvæði um samráð, stafrænt aðgengi og tæknilega lágmarksstaðla sem sveitarfélög skulu fylgja, en í frumvarpinu er gert ráð fyrir rafrænum íbúakosningum og stafrænum samráðsleiðum.

ÖBÍ leggur til að bætt verði við eftirfarandi ákvæði í lögin:

„Sveitarfélög skulu tryggja að samráð, íbúafundir, kosningar og rafræn samskipti séu aðgengileg fötluðu fólki, þar á meðal með notkun táknmálstúlkunar, textunar, auðlesins máls og annarra viðeigandi úrræða eftir þörfum.“

Algild hönnun

Meginreglur algildrar hönnunar fela í sér að lausnir séu aðgengilegar öllum frá upphafi til að enginn verði jaðarsettur og háður dýrum og óhentugum sérlausnum. Lög um aðgengi að vefsetrum og smáforritum opinberra aðila gera kröfu um að WCAG 2.1 staðallinn sé uppfylltur og að sveitarfélög séu með aðgengisyfirlýsingar í öllum stafrænum lausnum þar sem fram kemur hvernig fötluðu fólki er gert kleift að nýta þær ásamt skilgreindri leið til þess að taka á móti ábendingum og spurningum um aðgengishindranir.

ÖBÍ leggur til að bætt verði við eftirfarandi ákvæði í lögin:

„Við undirbúning ákvarðana, skipulag þjónustu og þróun stafrænna lausna skulu sveitarfélög hafa að leiðarljósi meginreglur algildrar hönnunar og aðgengis þannig að allir íbúar geti notið þjónustu sveitarfélagsins til jafns við aðra.“

Aðgengi að tölfræði, upplýsingum og aðhald

Í 113. gr. frumvarpsins segir að Sambandi íslenskra sveitarfélaga sé heimilt, í þágu hlutverks síns sem sameiginlegur málsvari sveitarfélaga, að kalla eftir og miðla nauðsynlegum gögnum og upplýsingum frá sveitarfélögum. Tilgangur gagnaöflunar skal m.a. takmarkast við að safna saman og miðla tölfræðilegum upplýsingum um starfsemi, rekstur og þjónustu sveitarfélaga.

ÖBÍ leggur til breytingar á 113. gr. frumvarpsins:

„Samband íslenskra sveitarfélaga safni og birti árlega upplýsingar um fjölda og dreifingu félagslegra leiguíbúða sveitarfélaga sem og fjölda einstaklinga á biðlistum eftir lögbundinni þjónustu. Ráðherra útfæri fyrirkomulagið nánar í reglugerð.”

Skortur á reglum og eftirliti

ÖBÍ fagnar áherslum í 9. kafla sveitarstjórnarlaga um stjórnsýslueftirlit með sveitarfélögum en áréttar að slíkt eftirlit þarf að vera sýnilegt og markvisst, með árlegum úttektum, birtingu niðurstaðna og skýrum kröfum um úrbætur innan tiltekins frests.

Frumkvæðisathugun Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) frá 2025 sýnir að víða skortir sveitarfélög grundvallarreglur og uppfærðar verklagsheimildir um stoð- og stuðningsþjónustu. Aðeins sex sveitarfélög voru með reglur í samræmi við lög nr. 38/2018. Þessi staða vekur djúpstæðar áhyggjur af þjónustuöryggi fatlaðs fólks. Reglur sveitarfélaga eru ekki formsatriði, þær eru réttindatæki sem eiga að tryggja að einstaklingar geti treyst á jafna og fyrirsjáanlega þjónustu. Þegar reglur eru úreltar eða þær vantar með öllu, er hætta á að þjónustan verði handahófskennd og byggi á ólíkum túlkunum eða fjárhagslegu svigrúmi hverrar sveitarstjórnar. Það brýtur gegn jafnræðisreglu stjórnsýslulaga og 5. gr. laga nr. 38/2018, sem kveða á um rétt til þjónustu í heimabyggð.

ÖBÍ áskilur sér rétt til að koma á framfæri frekari athugasemdum á seinni stigum.

Ekkert um okkur án okkar!

Með vinsemd og virðingu,

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ

Kjartan Þór Ingason
verkefnastjóri ÖBÍ

Stefán Vilbergsson
verkefnastjóri ÖBÍ


Sveitarstjórnarlög
5. mál, lagafrumvarp. Umhverfis- og samgöngu­nefnd Alþingis.
Umsögn ÖBÍ, 29. september 2026