Flóttafólk og innflytjendurUmsögn

Dvalarleyfi – frumvarp til breytinga á lögum um útlendinga

By 15. október 2026október 16th, 2026No Comments

ÖBÍ fagnar aukinni vernd þolenda mansals og misneytingar á vinnumarkaði. Fatlað fólk er oft útsettara fyrir slíkum brotum en aðrir.

Í q-lið formálsorða samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) viðurkenna aðildarríki m.a. að fatlaðar konur og stúlkur séu oft í meiri hættu, innan heimilis sem utan, á að verða fyrir ofbeldi, skaða eða misþyrmingum, vanrækslu eða hirðuleysi, illri meðferð eða misnotkun í gróðaskyni.

Í 4., 7., og 24. gr. frumvarpsins er kveðið á um söfnun lífkenna, þ.m.t. fingrafara, án undanþágu fyrir fólk sem getur það ekki vegna líkamlegra orsaka. Bent er á að slíka undanþágu er að finna í 3. mgr. 16. gr. laga um landamæri og leggur ÖBÍ til að sams konar undanþágu verði bætt við frumvarpið.

Í frumvarpinu eru lagðar til ýmsar hertar kröfur um framfærslu og stærð heimilis vegna umsókna um ótímabundið dvalarleyfi og fjölskyldusameiningar. Að mati ÖBÍ verður að tryggja að veittar séu undanþágur fyrir þá sem vegna fötlunar eiga erfiðara með að tryggja framfærslu sína en fólk almennt. Skapi kröfurnar aðgangshindranir fyrir fatlað fólk umfram aðra kunna þær að fela í sér mismunun á grundvelli fötlunar í andstöðu við lög nr. 80/2025 um SRFF.

Í c-lið 9. gr. frumvarpsins er lagt til að 5. mgr. 58. gr. falli brott. Samkvæmt ákvæðinu í núverandi mynd á skilyrði um trygga framfærslu ekki við um þá sem hafa fengið dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar skv. 73. gr. eða mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. Í 2. lið 2. mgr. 58. gr. er heimild til að veita undanþágu ef framfærsla hefur verið ótrygg um skamma hríð og ríkar sanngirnisástæður mæla með því. Uppfylla þarf bæði skilyrðin en framfærsla fatlaðs fólks getur verið ótrygg til lengri tíma af ýmsum ástæðum.

ÖBÍ leggur því til að undanþáguákvæðinu verði breytt þannig að það geti komið til móts við aðstæður fólks sem býr við ótrygga framfærslu vegna fötlunar.

Í ákvæði um dvalarleyfi fyrir aldraða foreldra í 22. gr. frumvarpsins er bæði gerð krafa um trygga framfærslu og húsnæði sem rúmar dvalarleyfishafann og alla aðstandendur sem þar munu búa. Krafan um húsnæði er einnig gerð almennt fyrir fjölskyldusameiningar í 15. gr. frumvarpsins.

ÖBÍ leggur til að bætt verði við undanþáguákvæði svo taka megi tillit til fólks sem býr við ótrygga framfærslu og fjárhag vegna fötlunar.

Með b-lið 9. gr. frumvarpsins er lagt til að við bætist ákvæði um að umsækjandi um ótímabundið dvalarleyfi megi ekki vera í vanskilum vegna skatta, opinberra gjalda eða sekta. Í greinargerð kemur fram að undir þetta falli m.a. ofgreiddar bætur úr almannatryggingakerfinu. Fólk sem fær greiddan örorkulífeyri lendir oft í því að fá óvæntar endurgreiðslukröfur sem getur reynst þeim erfitt að greiða til baka.

ÖBÍ leggur til að ákvæðið nái ekki til greiðslna almannatrygginga.

Virðingarfyllst,

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ

Sigurður Árnason
lögfræðingur ÖBÍ


Dvalarleyfi – Frumvarp til breytinga á lögum um útlendinga | Samráðsgátt | Mál: S-189/2026 | Dómsmálaráðuneytið 
Umsögn ÖBÍ, 15. október 2026


ÖBÍ réttindasamtök eru heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi. Hlutverk samtakanna er að koma fram fyrir hönd fatlaðs fólks í hvers kyns hagsmunamálum.