
Adobe Stock
„ÖBÍ ítrekar að í úrbótaáætlun þurfi að tilgreina ábyrgðaraðila, tímasetta framkvæmd og viðmið um árangur.“
Umsögn ÖBÍ
Skráningarskylda og viðbrögð við vanrækslu – 1. gr.
ÖBÍ fagnar því að í greinargerðinni sé áréttað að úttektir eigi að leiða til úrbótaáætlunar þegar tilefni er til og að í reglugerð verði fjallað sérstaklega um ábyrgð á eftirfylgni. Þar er jafnframt vísað til þess aðA gildandi eftirlitsheimildir séu fullnægjandi til að bregðast við vanræktri skráningarskyldu.
ÖBÍ telur þó mikilvægt að greina á milli heimildar til viðbragða og skyldu til að kanna þörf á þeim. ÖBÍ ítrekar því tillögu sína um að kveðið verði skýrt á um að Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) beri að kanna hvort ítrekuð eða alvarleg vanræksla þjónustuveitanda á skráningarskyldu gefi tilefni til að beita úrræðum samkvæmt IV. kafla laganna.
Aðgengilegar tilkynningar og þátttaka notenda – 2. og 3. gr.
ÖBÍ leggur til að réttur til aðgengilegra samskipta og viðeigandi stuðnings verði tryggður sérstaklega í lögunum. Tilkynningar og kvartanir þurfa að geta borist eftir fleiri en einni leið, þar á meðal án rafrænna skilríkja, m.t.t. aðstæðna hvers og eins. Upplýsingar um ferlið, ákvarðanir og niðurstöður verði veittar á skiljanlegu formi og með þeim samskiptamáta sem notandi þarf.
Stuðningur við að koma sjónarmiðum á framfæri má ekki ráðast af því hvort notandi eigi aðstandanda sem getur aðstoðað hann. Tryggja þarf að notandi geti fengið aðstoð aðila að eigin vali og, eftir þörfum, óháðan stuðning. Samskiptaerfiðleikar vegna fötlunar mega ekki einir og sér leiða til þess að sjónarmið aðstandanda komi í stað sjónarmiða notandans. Einnig þarf að tryggja að notendur geti tilkynnt atvik án ótta við að það hafi neikvæð áhrif á þjónustu þeirra.
Ákvarðanir um rannsókn og upplýsingar til þolenda – 3. gr.
Frumvarpið gerir ráð fyrir skriflegri og rökstuddri ákvörðun þegar rannsókn er ekki hafin og að hún sé tilkynnt þeim sem tilkynnti atvikið. ÖBÍ leggur til að einnig verði tryggt að þolandi eða réttmætur fyrirsvarsmaður hans fái slíka ákvörðun þótt þjónustuveitandi hafi sent tilkynninguna.
Setja þarf skýr viðmið um viðbragðstíma og reglubundna upplýsingagjöf. Jafnframt verði skýrt hvaða leiðir standa til boða til að óska endurskoðunar ákvörðunar um að hefja ekki rannsókn. Takmarkanir á aðgangi að gögnum og þátttöku verði rökstuddar, afmarkaðar og endurmetnar eftir því sem rannsókn vindur fram.
Réttarvernd þolenda og grunur um refsiverða háttsemi – 2. og 3. gr.
Í greinargerð kemur fram að fella eigi brott skyldu GEV til að benda lögreglu á meinta refsiverða háttsemi. Jafnframt eru lagðar til takmarkanir á notkun rannsóknarskýrslna og upplýsinga í sakamálum. ÖBÍ telur nauðsynlegt að skýra sérstaklega hvernig réttarvernd þolenda verði tryggð samhliða þessum breytingum.
ÖBÍ leggur til að velferðarnefnd láti meta hvort þörf sé á sérstöku ákvæði um viðbrögð við grun um ofbeldi, misnotkun eða aðra refsiverða háttsemi. Tryggja þarf að réttur starfsfólks og stjórnenda til að vera ekki þvinguð til að bera vitni gegn sjálfum sér skerði ekki vernd þolenda eða möguleika á sjálfstæðri rannsókn lögreglu.
Sannprófun úrbóta og gagnsæi
ÖBÍ ítrekar að í úrbótaáætlun þurfi að tilgreina ábyrgðaraðila, tímasetta framkvæmd og viðmið um árangur. GEV sannreyni að úrbætur hafi skilað tilætluðum árangri og skilgreind verði viðbrögð ef þær eru ófullnægjandi eða dragast. Þolendur fái upplýsingar um úrbætur sem varða öryggi þeirra.
ÖBÍ leggur jafnframt til að birtar verði ópersónugreinanlegar upplýsingar um atvik, helstu niðurstöður og árangur úrbóta. Við útfærslu reglugerða og verklags verði haft virkt samráð við fatlað fólk og samtök þess. Tryggja þarf stofnuninni nægilegt svigrúm til rannsókna, stuðnings við notendur og eftirfylgni.
ÖBÍ áskilur sér rétt til að koma frekari athugasemdum á framfæri við meðferð málsins.
Ekkert um okkur án okkar!
Með vinsemd og virðingu
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ
Þórdís Bjarnleifsdóttir
félagsráðgjafi ÖBÍ
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (rannsókn alvarlegra óvæntra atvika) | Ferill þingmáls | Alþingi
101. mál, lagafrumvarp. Velferðarnefnd Alþingis. Umsögn ÖBÍ, 7. október 2026

