
© Brynja leigufélag
ÖBÍ réttindasamtök ítreka að fatlað fólk er líklegra en ófatlað fólk til að búa í leiguhúsnæði. Þetta á sérstaklega við þann hóp fatlaðs fólks sem reiðir sig alfarið á örorkulífeyri og hefur takmörkuð sóknarfæri til að vænka hag sinn. Því er mikilvægt að stuðla að öruggum, sanngjörnum og aðgengilegum leigumarkaði fyrir fjölbreyttan hóp fólks. ÖBÍ vill koma eftirfarandi ábendingum á framfæri.
Íþyngjandi húsnæðiskostnaður og aðgengi
Samkvæmt nýrri leigumarkaðskönnun HMS býr um það bil 45% leigjenda við íþyngjandi leigubyrði, þar af greiða um 13% leigjenda meira en 60% ráðstöfunartekna heimilisins í leigu. Í þeim tilfellum má lítið út af bregða til að einstaklingar eða fjölskyldur geti ekki staðið undir greiðslubyrði og neyðist til að leita að nýjum samastað. Sú staða getur verið afar krefjandi, sérstaklega fyrir fatlað fólk sem ræður ekki við verðlagningu annarra leiguíbúða á almennum markaði en fellur ekki undir viðmið síns sveitarfélags fyrir úthlutun á félagslegu leiguhúsnæði. Skert aðgengi getur einnig hamlað tækifærum fatlaðs fólks á að finna leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði, en dæmi eru um að fatlað fólk hafi þurft að hætta við að taka íbúð á leigu sem samræmdist þeirra greiðslugetu sökum þess að íbúðin var óaðgengileg.
Þótt leigubremsa kunni að geta styrkt húsnæðisöryggi fatlaðs fólks á almennum leigumarkaði með auknum fyrirsjáanleika um þróun leiguverðs þarf jafnframt að horfa til mögulegra áhrifa fyrirhugaðra breytinga á ólíka leigusala. Þar þarf meðal annars að huga að rekstrargrundvelli óhagnaðardrifinna leigufélaga sem starfa samkvæmt félagslegum markmiðum og byggja rekstur sinn á langtímafjármögnun, meðal annars með verðtryggðum lánum. Í því ljósi er vert að nefna Brynju leigufélag slf. sem hefur það hlutverk að kaupa, eiga og reka íbúðarhúsnæði fyrir fatlað fólk á eins hóflegu gjaldi og kostur er. Samkvæmt nýjustu ársskýrslu Brynju leigufélags má finna samanburð á leiguverði 70,6 fermetra íbúðar í mars 2026. Meðalleiguverð íbúða í þeirri stærð á vegum Brynju er 170.217 kr. á mánuði samhliða 252.395 kr. meðalleiguverði á vegum einstaklinga eða 48% hærra og 257.619 kr. meðalleiguverð hagnaðardrifinna leigufélaga eða um 51% hærra en leiguverð Brynju.
Ávinningur af sjálfbærum rekstri félagsins er því mikill fyrir fatlað fólk sem og samfélagið í heild sinni. Mikilvægt er að lagasetning grafi ekki undan þeirri sjálfbærni sem nauðsynleg er til að tryggja framboð hagkvæms húsnæðis til lengri tíma fyrir fatlað fólk.
ÖBÍ tekur undir ábendingar í umsögn Brynju leigufélags og hvetur stjórnvöld til að endurskoða frumvarpið með tilliti til samfélagslegs ávinnings sjálfbærra óhagnaðardrifinna leigufélaga sem starfa í almannaþágu.
Formgerð íslenska leigumarkaðsins og húsnæðisóöryggi
Samkvæmt fyrrnefndri leigumarkaðskönnun HMS leigja 60% svarenda af einstaklingi á almennum markaði. Sú formgerð er frábrugðin leigumörkuðum flestra OECD ríkja þar sem meirihluti leigjenda leigir af almennum og óhagnaðardrifnum leigufélögum eða leigir hjá hinu opinbera. ÖBÍ telur þessa einsleiddu formgerð stuðla að auknu húsnæðisóöryggi þar sem leigan er einnig háð persónulegum breytingum í lífi leigusala. Sá listi er ekki tæmandi en sem dæmi má nefna flutninga leigusala vegna atvinnutækifæra í annarri byggð, aldurs og hjónaskilnaðar. Einnig má nefna dæmi um heimkomu uppkominna barna leigusala.
Í könnuninni kemur einnig fram að leigjendur sem leigja íbúðir af óhagnaðardrifnum leigufélögum og sveitarfélögum upplifa að jafnaði mesta húsnæðisöryggið og greiða jafnframt lægra hlutfall sinna ráðstöfunartekna í leigu en leigjendur sem leigja af einstaklingi á almennum markaði eða hjá almennu leigufélagi. Hins vegar leigðu einungis 7% svarenda hjá óhagnaðardrifnu leigufélagi og 2% hjá sveitarfélagi. Að mati ÖBÍ er brýnt að umgjörð húsaleigulaga sé skýr, réttlát og stuðli að framboði af aðgengilegu og öruggu leiguhúsnæði í samræmi við eftirspurn, stöðu og greiðslugetu fjölbreyttra hópa fólks. Góð umgjörð ein og sér er því miður ekki nóg og því er brýnt að stjórnvöld beiti sér markvisst að fjölbreyttari formgerð íslenska leigumarkaðsins til frambúðar.
ÖBÍ hvetur stjórnvöld til að beita sér fyrir aukinni hlutdeild sveitarfélaga og fjölbreyttra óhagnaðardrifinna leigufélaga á leigumarkaði.
ÖBÍ áskilur sér rétt til að koma á framfæri frekari athugasemdum á seinni stigum.
Ekkert um okkur án okkar!
Með vinsemd og virðingu,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ
Kjartan Þór Ingason
verkefnastjóri ÖBÍ
Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ
Húsaleigulög (reglubundnar breytingar á leigufjárhæð) | Ferill þingmáls | Alþingi
157. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 22. október 2026

