FréttHeilbrigðismálSjúkratryggingar

Gildistöku breytinga á endurgreiðslu sjúkrakostnaðar utan EES frestað

Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið að fresta gildistöku lagabreytingar sem felur í sér að almenn heimild til endurgreiðslu kostnaðar vegna heilbrigðisþjónustu utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) verður felld brott. Gildistöku breytingarinnar hefur verið frestað til 30. september 2027.

Ákvörðunin kemur í kjölfar fjölda erinda sem bárust ráðuneytinu frá einstaklingum og félagasamtökum, meðal annars ÖBÍ réttindasamtökum, Umhyggju – félagi langveikra barna og MND samtökunum. Þar hefur verið bent á að breytingin geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir fólk með langvinna sjúkdóma og fatlað fólk sem þarf að sækja heilbrigðisþjónustu erlendis.

Ferðatryggingar á einkamarkaði, til dæmis þær sem fylgja greiðslukortum, bæta almennt ekki sjúkrakostnað sem tengist undirliggjandi sjúkdómum. Því getur reynst erfitt eða ómögulegt fyrir suma að tryggja sig gegn slíkum kostnaði með öðrum hætti.

Heilbrigðisráðuneytið ætlar að taka málið til nánari skoðunar, meðal annars með tilliti til þess hvort viðkomandi hópar geti fengið viðeigandi tryggingavernd á einkamarkaði. Að sögn ráðuneytisins á frestunin að tryggja fyrirsjáanleika og að réttindi fólks haldist óbreytt á meðan málið er til skoðunar.