HúsnæðismálRéttarkerfiUmsögn

Aðför og nauðungarsala (sala á almennum markaði í stað uppboðs)

By 30. október 2026nóvember 2nd, 2026No Comments
Bygging í Keflavík þar sem sýslumaðurinn á Suðurnesjum hefur aðsetur.

„ÖBÍ leggur til að löggjafarvaldið skerpi á upplýsingaskyldu sýslumanna …“

ÖBÍ réttindasamtök taka undir markmið frumvarpsins um að við nauðungarsölu verði almenn sala á markaði meginregla þegar um er að ræða íbúðarhúsnæði sem jafnframt er lögheimili gerðarþola. Heimilið er griðastaður fólks og brýnt að stjórnvöld leiti lausna til að lágmarka beitingu íþyngjandi aðgerða í sínu verklagi.

ÖBÍ fagnar jafnframt þeirri breytingu á 11. gr. frumvarpsins  að frestur til að koma skriflegri yfirlýsingu á framfæri við sýslumann verði lengdur í fjórar vikur. Nauðungarsala heimilis er íþyngjandi aðgerð og mikilvægt að gerðarþoli hafi nægilegt svigrúm til að leita ráðgjafar og gæta hagsmuna sinna.

Fatlað fólk og nauðungarsölur

Ákvörðun um nauðungarsölu fasteignar er íþyngjandi stjórnvaldsaðgerð sem getur haft veruleg áhrif á líf fólks, sérstaklega þeirra sem eru að missa heimili sitt og sjá fram á húsnæðisóöryggi. Af þeim sökum verða stjórnvöld að kanna aðstæður viðkomandi og tryggja að upplýsingar og leiðbeiningar séu aðgengilegar og að öll bjargráð hafi verið fullreynd.

Í greinargerð frumvarpsins er nefnt dæmi um mál fatlaðs manns í Reykjanesbæ frá 2023 þegar gerðarþoli þurfti að una því að fasteign hans, sem var metin á 57 millj. kr., seldist á nauðungaruppboði fyrir 3 millj. kr. en einungis eitt boð barst í eignina. Þegar málið kom fyrst fram í fjölmiðlum tjáði umboðsmaður skuldara í viðtali að hægt hefði verið að koma í veg fyrir þessa niðurstöðu ef stofnunin hefði vitað af málinu.

Viðkomandi höfðaði mál á hendur sýslumanni og fleiri aðilum með stuðningi frá ÖBÍ. Í málinu var krafist skaðabóta úr hendi þeirra aðila sem komu að sölunni. Byggt var m.a. á því að sýslumaður hefði ekki gætt að meginreglum stjórnsýsluréttar, ákvæðum stjórnarskrár, Mannréttindasáttmála Evrópu og samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF).

Fatlað fólk getur þurft aðstoð eða stuðning við að afla upplýsinga, átta sig á réttarstöðu sinni og bregðast við innheimtuaðgerðum. Þá geta aðstæður einstaklinga gert þeim erfitt fyrir að hefja samningaviðræður við kröfuhafa eða leita þeirra úrræða sem standa til boða. Upplýsingar og leiðbeiningar stjórnvalda þurfa því að vera aðgengilegar og taka mið af ólíkum þörfum fólks í samræmi við SRFF. Samskiptaleysi opinberra stofnana má aldrei skerða aðgengi einstaklinga að lögbundinni þjónustu. Huga þarf sérstaklega að frumkvæðisskyldu stjórnvalda og tryggja að öll úrræði hafi verið reynd til þaula áður en kemur til nauðungarsölu heimilis.

ÖBÍ leggur til að löggjafarvaldið skerpi á upplýsingaskyldu sýslumanna þannig að sýslumanni beri að afla upplýsinga um hvort neytandi hafi óskað eftir aðstoð hjá umboðsmanni skuldara strax þegar skuldamál einstaklings berst sýslumannsembættinu. Sýslumaður skal upplýsa og leiðbeina þeim einstaklingum sem ekki hafa óskað eftir aðstoð umboðsmanns skuldara um úrræðið.

ÖBÍ áskilur sér rétt til að koma á framfæri frekari athugasemdum á seinni stigum.

Ekkert um okkur án okkar!

Með vinsemd og virðingu,

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ

Kjartan Þór Ingason
verkefnastjóri ÖBÍ


Aðför og nauðungarsala (sala á almennum markaði í stað uppboðs) | Ferill þingmáls | Alþingi 
107. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 30. október 2026