
Adobe Stock
Líkt og ÖBÍ gerði í umsögn um frumvarp til laga nr. 80/2026 um skipan nefndar til að kanna aðbúnað barna sem vistuð voru fyrir atbeina stjórnvalda á einkaheimilum leggja samtökin áherslu á að tekið verði sérstaklega mið af stöðu fatlaðra barna. Reynslan sýnir að fötluð börn hafa verið í sérstaklega viðkvæmri stöðu í vistun, oft með takmarkaða rödd, aukna hættu á ofbeldi og minni aðgang að réttarúrræðum. ÖBÍ fagnar ákvæði 5. mgr. 7. gr. um að tryggja beri fötluðu fólki aðgengilega málsmeðferð á kostnað ráðuneytisins.
Í 2. mgr. 2. gr. reglugerðardraganna segir að við val á nefndarmönnum skuli m.a. horft til þekkingar á sviði sálfræði og barnaverndar. ÖBÍ leggur til að bætt verði við þekkingu á fötlunum og réttindum fatlaðs fólks.
Í 3. gr. segir að mælt skuli fyrir um verkefni nefndarinnar í erindisbréfi nefndarinnar og að þar komi m.a. fram hvaða einkaheimilum rannsóknin skuli beinast að. Að mati ÖBÍ ætti vinna nefndarinnar frekar að leiða í ljós til hvaða heimila verkefnið tekur til. Að öðrum kosti sé hætta á að mál einstaklinga sem brotið hefur verið á falli þar utan. Þar segir einnig að í erindisbréfi skuli afmarkað tímabil rannsóknarinnar. ÖBÍ ítrekar mikilvægi þess að útiloka ekki sjálfkrafa atvik sem kunna að hafa átt sér stað utan þeirra tímamarka sem skilgreind eru í lögum nr. 80/2026.
Í 4. mgr. 6. gr. segir að þegar nefndin óskar eftir heilsufarsupplýsingum og í hlut eigi einstaklingur sem getur ekki veitt slíkt samþykki, svo sem vegna aldurs eða hann hefur verið sviptur lögræði, skuli leita samþykkis lögráðamanns eða nánasta aðstandanda. ÖBÍ bendir á að samkvæmt 12. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF), sbr. lög nr. 80/2026, beri að virða sjálfsákvörðunarrétt fatlaðs fólks og veita viðeigandi stuðning við ákvarðanatöku (e. supported decision making). Í samræmi við þá skyldu leggja samtökin til að kveðið verði á um að reynt verði að leita afstöðu viðkomandi með stuðnings ákvarðanatöku. Þá benda samtökin á að ekki er algilt að nánasti aðstandandi sé hinn rétti aðili til að veita sjálfræðissviptum einstaklingi stuðning við ákvarðanatöku eða veita samþykki fyrir hans hönd.
Í 18. gr. er kveðið á um sálfræðiaðstoð og fjöldi tíma takmarkaður við þrjú sálfræðiviðtöl. ÖBÍ leggur til að heimilt verði að veita fleiri viðtöl á grundvelli einstaklingsbundins mats.
Í 20. gr. er kveðið á um birtingu skýrslu nefndarinnar og leggur ÖBÍ til að kveðið verði á um að skýrslan skuli vera aðgengileg fötluðu fólki, þ.m.t. fólki með sjón- og heyrnarskerðingar, og að hún sé birt á auðlesnu máli.
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ
Sigurður Árnason
lögfræðingur ÖBÍ
Andrea Valgeirsdóttir
lögfræðingur ÖBÍ
Reglugerð um fósturheimilanefnd | Samráðsgátt | Mál: S-211/2026
Forsætisráðuneytið. Umsögn ÖBÍ, 2. nóvember 2026

