
© Veðurstofa Íslands / loftslagsskyrsla.is
Þrátt fyrir að frumvarpið feli í sér jákvæð skref til að styrkja lagaumgjörð loftslagsmála skortir skýr ákvæði um áhrif loftslagsaðgerða og -breytinga á fatlað fólk. Lagt er til að í frumvarpinu verði ákvæði um að við mótun loftslagsstefnu, aðgerðaáætlana og aðlögunaráætlana fari fram sérstakt mat á áhrifum á fatlað fólk og aðra jaðarsettahópa, að samráð verði haft við hagsmunasamtök þeirra og að tryggt verði að upplýsingar, viðvaranir og innviðir séu aðgengilegir öllum.
Fatlað fólk verður fyrir meiri áhrifum af breyttum samgöngumátum og breytingum á orkunotkun og gjaldtöku vegna hennar en almenningur að jafnaði enda getur það verið háð sérútbúnum bílum, reglulegum sjúkraferðum eða orkunotkun vegna lækningatækja. Því er mikilvægt að taka tillit til og meta sérstaklega áhrif áætlana á fatlað fólk og aðra jaðarsetta hópa þannig að aðgerðir leiði ekki til skertrar þátttöku, þjónustu eða lífsgæða.
Í frumvarpinu er lögð áhersla á að efla þurfi þol almennings til að takast á við loftslagsbreytingar og að setja eigi fram aðlögunaraðgerðir í samræmi við niðurstöðu viðkvæmni- og áhættumats, ef matið leiðir í ljós þörf á aðlögun að loftslagsbreytingum. Þol fatlaðs fólks gagnvart loftslagsbreytingum er minna en annarra og skoða þarf sérstaklega hvernig viðbragðsáætlanir vegna ofsaveðurs, hitabylgju eða loftmengunar, samgöngutruflanir og rafmagnsleysi taka fatlað fólk og sérstakar aðstæður þess með í reikninginn við viðkvæmni- og áhættumat. Aðlögunaraðgerðir þurfa að taka mið af þeim niðurstöðum og gera viðeigandi ráðstafanir til að bæta aðgengi fatlaðs fólks að samgöngum, upplýsingum, neyðarþjónustu, heilbrigðisþjónustu og öðrum grunninnviðum.
Sérstaklega er bent á að upplýsingar og viðvaranir vegna loftslagsáhættu þurfa að vera aðgengilegar öllum, þar á meðal á auðlesnu máli, táknmáli og á formum sem henta fólki með skerta sjón, heyrn eða aðra færniskerðingu.
Í 11. gr. frumvarpsins segir að í aðgerðaáætlun skal koma fram mat á áætluðum kostnaði ásamt mati á loftslagsávinningi af aðgerðunum að því marki sem það er hægt. Lagt er til að í aðgerðaáætlun komi einnig fram áætlaður ábati aðgerða hvað varðar fatlað fólk.
ÖBÍ réttindasamtök minna stjórnvöld á samráðsskyldu skv. lögum um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, nr. 80/2025, og bendir á mikilvægi þess að tryggt sé að í loftslagsráði sé sérþekking á félagslegum áhrifum loftslagsbreytinga, mannréttindum og málefnum fatlaðs fólks.
Ekkert um okkur án okkar!
Með vinsemd og virðingu,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka
Stefán Vilbergsson
verkefnastjóri ÖBÍ réttindasamtökum
Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka
Loftslagslög | Ferill þingmáls | Alþingi
202. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 3. nóvember 2026

