- This event has passed.
Þetta fólk – dansverk

Miðvikudaginn 11. nóvember kl. 20:00.
Iðnó, Vonarstræti 3, 101 Reykjavík.
Dagskráin er helguð Emblu Guðrúnar Ágústsdóttur, listamanneskju Listar án landamæra 2026.
Flutt verður dansverkið „Þetta fólk“, sem er alfarið skapað af hópi fatlaðra dansara undir stjórn Emblu. Að sýningu lokinni fara Embla og Vigdís Jakobsdóttir, fyrrverandi listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík, yfir listrænan feril Emblu og sköpunaraðferðir í listamannaspjalli.
Danshöfundur og flytjandi: Embla Guðrúnar Ágústsdóttir.
Dansarar: Freyja Haraldsdóttir, Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir, Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, Kristrún Kolbrúnar, Steinunn Anna Radha og Þorbera Fjölnisdóttir.
Aðgangur er ókeypis og öll velkomin meðan húsrúm leyfir.
Tryggið ykkur sæti með skráningu HÉR
Aðgengi í Iðnó er grænt. Viðburðurinn fer fram á jarðhæð í aðalsal Iðnó. Þar er hjólastólaaðgengi, lyfta milli hæða og aðgengilegt salerni á neðri hæð.
Nánari upplýsingar um viðburðinn HÉR
Verið hjartanlega velkomin!
List án landamæra / Art Without Borders




