RéttarkerfiUmsögn

Markaðssetningarlög o.fl. (réttarúrræði neytendaverndarsamtaka)

By 6. nóvember 2026nóvember 12th, 2026No Comments
Táknræn ljósmynd af konu sem situr í sófa, hvílir fæturna á hjólastól og brosir við hundi sem kemur inn um svalahurð.

ÖBÍ réttindasamtök hafa tekið til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á markaðssetningarlögum, lögum um lögbann og dómsmál til að vernda heildarhagsmuni neytenda og lögum um kyrrsetningu, lögbann o.fl. (réttarúrræði neytendaverndarsamtaka).

ÖBÍ fagnar því að í frumvarpinu er skýrt kveðið á um heimild Neytendastofu til að taka til meðferðar kvartanir frá samtökum sem gæta heildarhagsmuna neytenda og að slík samtök teljist eiga lögvarinna hagsmuna að gæta í málum á málefnasviði stofnunarinnar. Frumvarpið styrkir réttarstöðu neytenda (þ.m.t. fatlaðs fólks) og eykur möguleika hagsmunasamtaka (þ.m.t. ÖBÍ sem eru hagsmunasamyök fatlaðs fólks) til að standa vörð um réttindi þeirra gagnvart ólögmætum viðskiptaháttum og óréttmætum skilmálum.

Að mati ÖBÍ eru breytingarnar á lögunum mikilvæg fyrir þann hóp neytenda sem af ýmsum ástæðum eiga erfitt með að fylgja réttindamálum sínum eftir sjálfir, þar á meðal fatlað fólk. Með frumvarpinu eru skapaðar skýrari og skilvirkari leiðir til að tryggja vernd heildarhagsmuna neytenda og stuðla að auknu réttaröryggi. Af þeim sökum lýsir ÖBÍ eindregnum stuðningi við frumvarpið.

Ekkert um okkur án okkar!

Virðingarfyllst,

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka

Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka

Stefán Vilbergsson
verkefnastjóri ÖBÍ réttindasamtaka


Markaðssetningarlög o.fl. (réttarúrræði neytendaverndarsamtaka) | Ferill þingmáls | Alþingi
84. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 6. nóvember 2026.