
Þrjár fræðikonur hlutu í gær verðlaun ÖBÍ réttindasamtaka fyrir framúrskarandi lokaverkefni. Verðlaunin voru afhent við athöfn í Mannréttindahúsinu þar sem Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, afhenti viðurkenningarnar. Þetta er í annað sinn sem verðlaunin eru veitt.
Verðlaunahafarnir eru Aldís Rún Ingólfsdóttir, Anna Sigrún Ingimarsdóttir og Eliona Gjecaj. Verkefnin fjalla um kynbundið ofbeldi gegn fötluðum konum, aðgengi þeirra að réttarkerfinu og reynslu ungs fatlaðs fólks á leið til fullorðinsára.
Verðlaun fyrir meistararitgerð
Aldís Rún Ingólfsdóttir hlaut verðlaun fyrir meistararitgerðina „Hvað ef við hlustuðum?“ Kynbundið ofbeldi gegn fötluðum konum, sem hún vann við lagadeild Háskólans í Reykjavík.
Í ritgerðinni skoðar Aldís hvort íslensk lög, framkvæmd þeirra og stuðningsúrræði tryggi fötluðum konum sem verða fyrir kynbundnu ofbeldi þá vernd sem þær eiga rétt á. Hún fjallar meðal annars um hvernig fötlun getur haft áhrif á mat réttarkerfisins á trúverðugleika brotaþola, samþykki og þörf fyrir vernd.
Í umsögn dómnefndar kemur fram að ritgerðin varpi ljósi á veikleika í íslensku réttarkerfi sem hingað til hafi fengið takmarkaða athygli. Niðurstöðurnar nýtist stjórnvöldum og þeim sem starfa með brotaþolum við að bæta verklag, stuðning og réttarvernd.
Tvær doktorsritgerðir verðlaunaðar
Anna Sigrún Ingimarsdóttir hlaut verðlaun fyrir doktorsritgerð sína í fötlunarfræði við Háskóla Íslands, Ungt fatlað fólk á vegferð til fullorðinsára: Úrlausnarefni og áskoranir – „Mér er alveg sama hvað þeim finnst, ég er sátt við mig eins og ég er“.
Rannsóknin fjallar um reynslu ungs fatlaðs fólks af því að verða fullorðið og takast á við þær breytingar sem því fylgja. Niðurstöðurnar sýna að ungt fatlað fólk hefur svipaðar væntingar til framtíðarinnar og jafnaldrar þess, hvort sem litið er til náms, atvinnu, félagslífs eða sjálfstæðis. Það mætir hins vegar ýmsum hindrunum sem annað ófatlað fólk þarf síður að glíma við.
Dómnefnd segir rannsóknina sýna vel hvernig fordómar, óaðgengilegt umhverfi og skortur á þjónustu geta takmarkað möguleika ungs fatlaðs fólks. Sérstaklega er því fagnað að reynsla og sjónarmið unga fólksins sjálfs séu í forgrunni.
Eliona Gjecaj hlaut einnig verðlaun fyrir doktorsritgerð í fötlunarfræði við Háskóla Íslands. Ritgerð hennar nefnist Fatlaðar konur og ofbeldi: Aðgengi að réttlæti.
Eliona rannsakaði reynslu fatlaðra kvenna sem hafa orðið fyrir kynbundnu ofbeldi og hvernig þeim gengur að leita réttar síns. Rannsóknin leiðir meðal annars í ljós að fatlaðar konur mæta margvíslegum hindrunum innan kerfisins, meðal annars vegna skorts á aðgengilegri þjónustu og viðeigandi stuðningi.
Í umsögn dómnefndar segir að rannsóknin sé mikilvægt framlag til þekkingar á málefni sem lítið hafi verið rannsakað hér á landi. Þar er jafnframt lögð áhersla á að aðgengi fatlaðra kvenna að réttlæti verði að vera trygg réttindi en ekki háð tilviljunum eða afstöðu einstakra starfsmanna réttarkerfisins.
„Okkar hlutverk er að taka þekkinguna alvarlega“
Logi Einarsson ráðherra óskaði verðlaunahöfunum til hamingju í ávarpi sínu og þakkaði ÖBÍ réttindasamtökum fyrir að vekja athygli á rannsóknum á stöðu og aðstæðum fatlaðs fólks. Hann sagði rannsóknirnar eiga erindi langt út fyrir háskólasamfélagið enda gætu þær nýst við ákvarðanatöku og stefnumótun.
„Þessi viðfangsefni eiga erindi langt út fyrir háskólana. Þau varða réttindi fólks og ákvarðanir okkar, sem berum ábyrgð á opinberri þjónustu og stefnumótun. Okkar hlutverk er að taka þekkinguna alvarlega og nýta hana.“
Ráðherra vék einnig að heiti ritgerðar Aldísar Rúnar, „Hvað ef við hlustuðum?“, og sagði það eiga að vera okkur öllum umhugsunarefni.
„Fatlað fólk hefur rödd. Spurningin er hvort við hlustum og hvort reynsla fatlaðs fólks hafi áhrif á ákvarðanir okkar.“
Verðlaun ÖBÍ réttindasamtaka eru ætluð til að vekja athygli á rannsóknum sem varða fötlun, líf og réttindi fatlaðs fólks og hvetja til frekari rannsókna á því sviði.
Í dómnefnd sátu Rannveig Traustadóttir, sem var formaður nefndarinnar, Rósa María Hjörvar og Eiríkur Smith.

