
Adobe Stock
„Fjölmargt fatlað fólk með stuðningsþarfir sem ekki falla undir lögin býr við ótryggan fjárhag …“
ÖBÍ réttindasamtök eru heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi. Hlutverk samtakanna er að koma fram fyrir hönd fatlaðs fólks í hvers kyns hagsmunamálum. ÖBÍ minnir á lög nr. 80/2025 um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) og bann við mismunun á grundvelli fötlunar, þ.m.t. í 5. gr. samningsins.
Í reglugerðardrögunum er svohljóðandi undanþáguákvæði í 11. mgr. 6. gr.: „Þegar umsókn um dvalarleyfi varðar fatlaðan einstakling með langvarandi stuðningsþarfir er Útlendingastofnun heimilt að taka tillit til heimilisaðstæðna umsækjanda og allra réttindabundinna greiðslna sem umsækjandi á rétt á við mat á framfærslu hans. Í því skyni er heimilt að víkja frá skilyrðum 4. gr. um lágmarksfjárhæð framfærslu enda séu önnur skilyrði dvalarleyfis umsækjanda uppfyllt. Leggja skal fram staðfestingu Tryggingastofnunar á langvarandi stuðningsþörfum umsækjanda vegna slíkrar ívilnunar.“
ÖBÍ fagnar undanþágunni en leggur til að hún eigi ekki aðeins við um fatlaða einstaklinga með langvarandi stuðningsþarfir heldur um fatlaða einstaklinga yfir höfuð. Fatlað fólk hefur almennt mun minni möguleika til að afla sér framfærslu. Þá er bent á að langvarandi stuðningsþarfir eru skilgreindar með lögum nr. 38/2018 sem Tryggingastofnun hefur ekki eftirlit með og því ólíklegt að stofnunin sé hæf til að staðfesta langvarandi stuðningsþarfir eins og lagt er til í lokamálslið undanþáguákvæðisins. Fjölmargt fatlað fólk með stuðningsþarfir sem ekki falla undir lögin býr við ótryggan fjárhag ekki síður en þau sem gera það.
Einnig leggur ÖBÍ til að skýrt verði tekið fram að undanþágan gildi bæði þegar umsækjandi er fatlaður og þegar barn hans eða annar fjölskyldumeðlimur er fatlaður. Einnig leggur ÖBÍ til að tekið verði fram að í tilviki fatlaðra komi greiðslur í formi félagslegrar aðstoðar eða framfærslu ríkis eða sveitarfélags ekki í veg fyrir útgáfu eða endurnýjun dvalarleyfis.
ÖBÍ leggur til að við kafla II. um framfærslu umsækjenda um íslenskan ríkisborgararétt verði einnig bætt við undanþáguákvæði vegna fatlaðs fólks og lagðar til sams konar áherslur og hér að ofan.
Í 7. og 15. gr. eru veittar heimildir til að víkja frá framfærsluskilyrðum vegna tímabundins tekjufalls, t.d. vegna veikinda eða slysa, í allt að þrjá til sex mánuði. Fötlun er hins vegar í flestum tilvikum langvarandi ástand. Fötluðu fólki er mun hættara við fátækt og fjárhagslegum erfiðleikum en almennt gerist og því rétt að víkja mætti frá framfærsluskilyrðum vegna langvarandi tekjufalls í tilviki fatlaðs fólks.
Að lokum er bent á að það orðalag að „greiðslur í formi félagslegrar aðstoðar eða framfærslu ríkis eða sveitarfélags teljist ekki til tryggrar framfærslu“ er óskýrt. Einkum er hér átt við fjárhagsaðstoð sveitarfélaga en orðalagið gæti t.d. skilist þannig að það ætti við um greiðslur frá Tryggingastofnun. Lagt er til að tryggt verði að ekki verði misskilningur hvað þetta varðar.
Virðingarfyllst,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ
Sigurður Árnason
lögfræðingur ÖBÍ
Drög að reglugerð um framfærslu vegna umsókna um dvalarleyfi og íslenskan ríkisborgararétt | Samráðsgátt | Mál: S-225/2026
Dómsmálaráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 16. nóvember 2026

