
Reykjanesfólkvangur /ÖBÍ
ÖBÍ réttindasamtök fagna framlagðri rannsóknaráætlun Ferðamálastofu fyrir árin 2026–2028 og þeirri áherslu sem þar er lögð á markvissa gagnaöflun sem grunn upplýstrar stefnumótunar í ferðaþjónustu. ÖBÍ vekur jafnframt athygli á verulegri glufu í áætluninni sem snýr að stöðu, ferðavenjum og aðgengi fatlaðs fólks að ferðaþjónustu á Íslandi.
Í áætluninni er fjallað um ferðavenjur erlendra ferðamanna, ferðavenjur Íslendinga, upplifun gesta, dreifingu ferðamanna um landið og samfélagsleg áhrif ferðaþjónustu. Þó er ekki að sjá að rannsókn eða gagnasöfnun sé fyrirhuguð um ferðavenjur fatlaðs fólks, aðgengi þess að ferðamannastöðum, samgöngum eða gistingu, né um hindranir sem fatlað fólk mætir við þátttöku í ferðaþjónustu. Slík gögn eru nauðsynleg ef markmið um sjálfbærni, samfélagslega sátt og aukin lífsgæði eiga að ná til alls samfélagsins.
Ferðamálastofa hefur rekið verkefnið Gott aðgengi í ferðaþjónustu í samstarfi við ÖBÍ og Sjálfsbjörgu sem hefur það að markmiði að stuðla að auknu aðgengi að áfangastöðum, gistingu og þjónustu fyrir fatlað fólk og aðra sem búa við skerta hreyfi- eða athafnagetu. Í ljósi þess samstarfs væri eðlilegt að ætla að í rannsóknaráætlun stofnunarinnar færi fram regluleg gagnaöflun um það hvernig fatlað fólk ferðast, hvaða hindrunum það mætir og hvernig aðgengi hefur áhrif á val þess á áfangastöðum og þjónustu.
Tillaga um samþættingu við núverandi verkefni
ÖBÍ leggur til að sjónarhorn fatlaðs fólks verði samþætt inn í þau verkefni sem þegar eru hluti af rannsóknaráætluninni.
Verkefni 2 – Landamærarannsókn
- Spurt verði um hvort ferðamaður sé fatlaður; með langvarandi skerðingu.
- Kannað verði hvernig viðkomandi metur aðgengi samgangna, gististaða, ferðamannastaða og afþreyingar.
- Metin verði tengsl aðgengis við ánægju ferðamanna og líkur á að þeir mæli með Íslandi sem áfangastað.
Verkefni 4 – Könnun á ferðahegðun Íslendinga
- Greint verði sérstaklega frá ferðavenjum fatlaðs fólks innanlands og erlendis.
- Kannað verði hvort skortur á aðgengilegri gistingu, samgöngum eða þjónustu hafi áhrif á ferðaval.
- Kortlagðir verði þeir kostnaðar- og aðgengisþættir sem draga úr þátttöku fatlaðs fólks í ferðalögum.
Verkefni 5 – Dreifing ferðamanna um landið
- Metið verði hvort áfangastaðir sem hafa skráð upplýsingar um aðgengi eða tekið þátt í verkefnum á borð við Gott aðgengi í ferðaþjónustu laði að sér breiðari hóp gesta.
Verkefni 7 – Gagnagrunnur og mælaborð ferðaþjónustunnar
Þróaðir verði mælikvarðar um aðgengi og þátttöku fatlaðs fólks sem birtir verði með reglubundnum hætti samhliða öðrum lykiltölum ferðaþjónustunnar.
Tengsl við efnahagsleg markmið áætlunarinnar
Í rannsóknaráætluninni er ítrekað að markmið rannsókna sé að styðja við efnahagslegan ábata þjóðarinnar, bæta ákvarðanatöku stjórnvalda og styrkja samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu.
Frá sjónarhóli ÖBÍ samræmist aukin þekking á ferðavenjum fatlaðs fólks fyllilega þeim markmiðum.
Fatlað fólk er ekki lítill sérhópur heldur stór og fjölbreyttur hluti samfélagsins, er fjölskyldufólk, á fötluð börn eða aðstandendur. Fatlað fólk er t.d. hreyfihamlað, heyrnarskert, lesblint, blint, með þroskahömlun, einhverft eða með hrörnunarsjúkdóma. Þegar tekið er tillit til fjölskyldna, aðstandenda og ferðafélaga er um verulegan markað að ræða. Fatlað fólk fer ekki af stað nema vita hvernig aðstæður eru á áfangastað, frekar situr það heima. Fatlað fólk er um 15% mannkyns og vill ferðast. Fatlað fólk ferðast ekki einsamalt og það stýrir jafnan því hvert hópurinn fer. Einn stærsti ferðamannahópurinn er aldrað fólk með góð fjárráð en oft skerta hreyfigetu.
Aðgengileg ferðaþjónusta eykur ekki aðeins möguleika fatlaðs fólks á þátttöku heldur gerir íslenska ferðaþjónustu samkeppnishæfari gagnvart ört vaxandi hópi ferðamanna sem velja áfangastaði út frá aðgengi. Gott aðgengi að ferðaþjónustu nær jafnframt til upplýsinga og annarra leiðbeininga.
Betri gögn geta meðal annars:
- stutt fjárfestingar í aðgengilegri gistingu og afþreyingu,
- leiðbeint sveitarfélögum og fyrirtækjum um hvar þörfin er mest,
- aukið þátttöku fatlaðs fólks í innanlandsferðalögum,
- stuðlað að fjölgun erlendra ferðamanna sem gera kröfur um gott aðgengi,
- og þar með aukið tekjur ferðaþjónustunnar og samfélagslegan ávinning hennar.
Þekkingarskortur á þessu sviði getur hins vegar leitt til þess að stjórnvöld og fyrirtæki missi af mikilvægum tækifærum til verðmætasköpunar og markaðsþróunar.
ÖBÍ leggur því til að við framkvæmd Rannsóknaráætlunar 2026–2028 verði tryggt að sjónarmið og reynsla fatlaðs fólks verði hluti af reglulegri gagnaöflun og rannsóknum Ferðamálastofu. Slíkt er í samræmi við markmið um sjálfbæra og samfélagslega ábyrga ferðaþjónustu, styður við verkefnið Gott aðgengi í ferðaþjónustu og styrkir jafnframt þá sýn að ferðaþjónusta á Íslandi skili sem mestum efnahagslegum og samfélagslegum ávinningi fyrir alla.
Með vinsemd og virðingu,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka
Stefán Vilbergsson
verkefnastjóri ÖBÍ réttindasamtökum
Drög að rannsóknaráætlun Ferðamálastofu 2026-2028 | Samráðsgátt | Mál: S-152/2026
Atvinnuvegaráðuneytið. Umsögn ÖBÍ, 17. nóvember 2026

