AtvinnumálKjaramálUmsögn

Breytingar á lögum um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda (viðurlög við brotum gegn lágmarkskjörum o.fl.)

By 18. nóvember 2026No Comments
Ungur maður með downs syndrome klæddur övið störf í verksmiðju

ÖBÍ réttindasamtök fagna framkomnu frumvarpi sem eflir réttarvernd launafólks með lögfestingu févítis vegna brota gegn lágmarkskjörum og um leið tryggir að kröfur um vangoldin lágmarkskjör falli ekki niður vegna tómlætis. Að mati ÖBÍ stuðlar það að sanngjarnari og réttlátari vinnumarkaði að brot gegn launafólki hafi afleiðingar og réttur starfsfólks til leiðréttingar sé betur tryggður.

ÖBÍ telur frumvarpið mikilvægt í ljósi þeirra breytinga sem tóku gildi á örorkulífeyriskerfi almannatrygginga árið 2025, þegar m.a. hlutaörorkulífeyrir var tekinn upp. Markmið þess lífeyris er að hvetja fatlað fólk og fólk með skerta starfsgetu til aukinnar atvinnuþátttöku. Sú stefna verður að byggja á því að fólk geti treyst á að rétt kjör séu greidd fyrir þá vinnu sem þeir inna af hendi. Ef laun eru greidd undir lögbundnum lágmarkskjörum getur það grafið undan markmiðum lagabreytinganna ásamt því að draga úr hvata til atvinnuþátttöku hjá þeim hópi sem breytingunum var sérstaklega ætlað að styðja við.

Fatlað fólk og fólk með skerta starfsgetu getur í sumum tilvikum verið í viðkvæmari stöðu en aðrir á vinnumarkaði, m.a. vegna takmarkaðrar þekkingar á flóknu umhverfi kjarasamninga og/eða ótta við að missa starf sitt. Slík staða getur torveldað fólki að gera athugasemdir við kjör sín og sækja rétt sinn. Það skiptir því verulegu máli að réttur til leiðréttingar vangoldinna launa glatist ekki vegna tómlætis og að atvinnurekendur sem brjóta gegn lágmarkskjörum sæti raunhæfum viðurlögum.

ÖBÍ telur að frumvarpið geti stuðlað að auknu öryggi á vinnumarkaði, styrkt stöðu jaðarsetts fólks og stutt við markmið stjórnvalda að auka atvinnuþátttöku fatlaðs fólks.

Ekkert um okkur án okkar!

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka

Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka

Sunna Elvíra Þorkelsdóttir
lögfræðingur ÖBÍ

Þórdís Bjarnleifsdóttir
félagsráðgjafi ÖBÍ


Frumvarp til laga um breytingar á lögum um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, nr. 55/1980 (viðurlög við brotum gegn lágmarkskjörum o.fl.) | Samráðsgátt | Mál: S-235/2026
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið. Umsögn ÖBÍ, 18. nóvember 2026