
ÖBÍ réttindasamtök fagna því að lagt hafi verið fram nýtt heildstætt frumvarp til laga um barnavernd þar sem leitast er við að styrkja réttindi barna. Sérstaklega ber að fagna því að í frumvarpinu er vísað sérstaklega til samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) og áréttað að fatlað barn skuli njóta réttinda samkvæmt lögunum til fulls og jafns við önnur börn.
Þrátt fyrir að í frumvarpinu felist miklar réttarbætur eru eftirfarandi ábendingar settar fram til að styrkja réttindi fatlaðra barna.
1.
Þátttaka fatlaðra barna og viðeigandi aðlögun
ÖBÍ fagnar þeirri áherslu sem frumvarpið leggur á þátttökurétt barna. Samtökin telja engu að síður að skortur sé á skýrum ákvæðum um hvernig tryggja eigi þátttöku fatlaðra barna sem þurfa sérstakan stuðning til samskipta eða tjáningar.
ÖBÍ leggur til að ákvæði 4. gr. og 73. gr. verði styrkt þannig að skýrt komi fram að barnaverndaryfirvöld skuli tryggja fötluðum börnum viðeigandi aðlögun, aðgengilegar upplýsingar og nauðsynlegan stuðning til samskipta, þar á meðal notkun hjálpartækja, túlkunarþjónustu eða annarra tjáskiptaleiða eftir þörfum.
Slíkar breytingar myndu styrkja samræmi frumvarpsins við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og stuðla að því að þátttökuréttur fatlaðra barna verði raunverulegur en ekki aðeins formlegur.
2.
Vistun utan heimilis sem síðasta úrræði
ÖBÍ telur mikilvægt að skýrar komi fram í 28. og 35. gr. frumvarpsins að vistun barns utan heimilis, þar með talið í sérhæfðu sólarhringsúrræði, sé ávallt síðasta úrræði.
Samkvæmt 19. gr. SRFF ber stjórnvöldum að tryggja fötluðu fólki þann stuðning sem nauðsynlegur er til að lifa og taka þátt í samfélaginu til jafns við aðra. Af þeirri skyldu leiðir að skortur á þjónustu, úrræðum eða stuðningi í nærumhverfi barns getur ekki einn og sér réttlætt aðskilnað þess frá fjölskyldu sinni.
ÖBÍ leggur því til að skýrt verði tekið fram að áður en vistun utan heimilis kemur til greina hafi verið reynd til fulls viðeigandi þjónusta, stuðningur, ráðgjöf og nauðsynleg aðlögun í heimahúsi og nærumhverfi barnsins. Skortur á þjónustu, biðlistar eða ágreiningur um ábyrgð og fjármögnun mega ekki ein og sér réttlæta vistun utan heimilis. Tryggja þarf jafnframt reglubundna endurskoðun vistunar og mat á möguleikum til heimkomu.
Jafnframt telja samtökin mikilvægt að fötlun eða miklar stuðningsþarfir geti aldrei einar og sér verið grundvöllur vistunar utan heimilis.
3.
Skilgreining barna með fjölþættar stuðningsþarfir
ÖBÍ gerir áfram athugasemd við skilgreiningu 4. tölul. 3. gr. frumvarpsins þar sem vísað er til „flókinnar og samsettrar röskunar í tauga- og vitsmunaþroska“. Samtökin telja óljóst hvaða faglegu viðmið liggja að baki hugtakinu og telja mikilvægt að í lagatexta eða greinargerð komi skýrar fram hvernig mat á þessum skilyrðum skuli fara fram.
4.
Bann við að beita þvingunum vegna mannafla- eða húsnæðisskorts (VII. kafli)
Þvingun má ekki koma í stað viðeigandi stuðnings, aðlögunar, sérþekkingar eða nægrar mönnunar. Við mat á nauðsyn inngrips þarf að kanna hvort vanlíðan eða hegðun barns tengist meðal annars verkjum, skynáreiti, tjáskiptavanda eða ófullnægjandi þjónustu.
Í framkvæmd hefur borið á því að inngripum eða takmörkunum á ferðafrelsi sé beitt vegna þess að úrræði skortir, mönnun eða viðeigandi húsnæði til að mæta þörfum fatlaðs barns. Lagt er til að í 46. gr. frumvarpsins verði bætt við afdráttarlausu banni við því að beita þvingunum, herbergissetu eða ferðafrelsisskerðingu vegna skorts á mannafla, skipulagsörðugleika eða skorts á viðeigandi húsnæði og þjónustu.
Jafnframt þarf að tryggja að takmarkanir á notkun raftækja skerði ekki aðgang barns að nauðsynlegum hjálpar- og tjáskiptatækjum.
5.
Eftirlit með fósturheimilum og vistunarúrræðum
ÖBÍ fagnar því að í frumvarpinu sé gert ráð fyrir heimild til eftirlitsheimsókna á fósturheimili án fyrirvara. Samtökin telja þó að það eitt sé ekki nægilegt. Til að tryggja raunhæft og árangursríkt eftirlit þarf að kveða skýrar á um að hluti eftirlits fari reglulega fram án fyrirvara.
Reynsla af eftirlitskerfum sýnir að boðaðar heimsóknir gefa ekki alltaf rétta mynd af daglegum aðstæðum barns. ÖBÍ leggur því áherslu á að styrkja ákvæði um óundirbúið eftirlit og sjálfstætt gæðaeftirlit með fósturheimilum og vistunarúrræðum. Um er að ræða mikilvæga réttarbót fyrir öll börn en sérstaklega fyrir fötluð börn, sem geta átt erfiðara með að gera athugasemdir við aðstæður sínar eða leita sér aðstoðar.
6.
Réttindi fatlaðra foreldra
ÖBÍ ítrekar fyrri ábendingar um nauðsyn þess að tryggja fötluðum foreldrum viðeigandi aðlögun og stuðning við málsmeðferð og við að sinna foreldrahlutverki sínu.
Við mat á foreldrahæfni þarf að kanna getu foreldris með viðeigandi stuðningi. Fötlun foreldris ein og sér má ekki vera grundvöllur barnaverndaríhlutunar eða forsjársviptingar. Jafnframt þarf að tryggja að skortur á þjónustu sem opinberum aðilum ber að veita verði ekki túlkaður sem vanræksla eða vanhæfni foreldris.
Frumvarpið felur í sér stórt skref fram á við fyrir fötluð börn í landinu. Með því að lögfesta vísun í Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, skýra ábyrgð ríkisins á sérhæfðri búsetu fatlaðra barna og innleiða strangan ramma um beitingu þvingana er stigið mikilvægt skref til verndar réttindum þeirra. Lagt er til að velferðarnefnd Alþingis komi til móts við framangreindar ábendingar til að tryggja að lögin nái tilgangi sínum að fullu.
Ekkert um okkur án okkar!
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka
Andrea Valgeirsdóttir
lögfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka
Þórdís Bjarnleifsdóttir
félagsráðgjafi ÖBÍ réttindasamtaka
Barnavernd | Ferill þingmáls | Alþingi
78. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 2. október 2026

