Skip to main content

Námsstyrkir

Styrkir úr Námssjóði SJ eru veittir fötluðu fólki til að mennta sig.  Öll sem eru í námi í fötlunarfræðum geta einnig sótt um styrk.

34 einstaklingar fengu námsstyrki í júní 2023,  samtals  um tæpar 3 milljónir króna.

ÖBÍ réttindasamtök hvetja þig til að hefja nám og öðlast nýja færni.  

Umsóknarfrestur til að sækja um námsstyrk vorið 2024 er 5. maí næstkomandi. Úthlutað er úr í júní.

Athugið að námsstyrki þarf að gefa upp til skatts við gerð næstu skattskýrslu. Hvort sem styrkirnir flokkist undir að vera skattskyldir eða falla undir undantekningu frá skattskyldu styrkja. Sjá nánar: Styrkir | Skatturinn – skattar og gjöld

Gott að vita …

Sveitarfélögin veita einnig fötluðu fólki og öryrkjum styrki til náms og tækjakaupa.

Þann 21. febrúar 2019 uppfærði Félagsmálaráðuneytið reglugerðina: „Leiðbeinandi reglur fyrir sveitarfélög um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks.

Grundvöllur reglugerðarinnar er að við „setningu og framkvæmd reglna sinna skulu sveitarfélög taka mið af þeim alþjóðlegu skuldbindingum sem íslensk stjórnvöld hafa gengist undir, einkum Samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Aðrir sjóðir, stofnanir, fyrirtæki og félagsamtök sem styrkja öryrkja og fatlað fólk til menntunar eru flestir listaðir á vef Þekkingarmiðstöðar Sjálfsbjargar.

Aðildarfélög ÖBÍ eru mörg hver með styrktarsjóði til dæmis náms- og ferðasjóði. Styrkirnir eru í boði fyrir félaga en það er þó ekki algilt. Því er vert að kanna hvort og hvað kynni að nýtast þér.


Námssjóður Sigríðar Jónsdóttur var stofnaður árið 1993 fyrir söluvirði íbúðar sem Sigríður Jónsdóttir arfleiddi ÖBÍ að. Fyrstu styrkirnir voru veittir 11. júní 1995. Námssjóðurinn er í vörslu ÖBÍ.