Ekki meiri bið
Veitum fólki þá þjónustu sem það á rétt á, þegar það þarf á henni að halda. Vindum ofan af öllum þessum biðlistum eftir til dæmis NPA-þjónustu, liðveislu, greiningum og húsnæði.
Hugsum um börnin
Gefum öllum börnum jöfn tækifæri til að vera með í tómstunda-, íþrótta- og frístundastarfi óháð fötlun. Tryggjum að skólarnir, hver einn og einasti, geti tekið á móti nemendum í allri sinni fjölbreytni og bjóðum upp á viðeigandi stuðningsúrræði.
Tækifæri á vinnumarkaði
Sveitarfélög þurfa að sýna gott fordæmi og fjölga hlutastörfum til að tryggja möguleika fatlaðs fólks til atvinnuþátttöku.
Hvar má ég búa?
Fatlað fólk býr við sérstaklega íþyngjandi húsnæðiskostnað. Leysum málið og vinnum að lausnum sem virka fyrir fatlað fólk. Eyðum biðlistum og bjóðum fötluðu fólki búsetu og þjónustu við hæfi í stað þess að vista það á hjúkrunarheimilum.
Aðgengilegar samgöngur
Ef almenningssamgöngur eiga að vera fyrir alla þurfa þær að vera aðgengilegar, eins og lög gera ráð fyrir. Það nær bæði til farartækja sem og biðstöðva. Akstursþjónusta fatlaðs fólks þarf líka að virka sem skyldi og veita góða þjónustu
Algild hönnun og aðgengi
Ákvæði um algilda hönnun í byggingarreglugerð skiptir lykilmáli, en það þarf að framfylgja því. Aðgengi í víðum skilningi er skilyrði fyrir tækifærum til samfélagsþáttöku og það þarf að tryggja.

