FréttListir & menning

Afhentu tillögur um aukna þátttöku í listum og menningu

Fulltrúar ÖBÍ réttindasamtaka, Þroskahjálpar, Listar án landamæra og Bandalags íslenskra listamanna afhentu Loga Má Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra skýrslu með tillögum að aukinni þátttöku fatlaðs fólks í listum og menningu í vikunni. Skýrslan á sér talsverðan aðdraganda og er afrakstur starfshóps sem skipaður var í nóvember 2024.

Vorið 2024 samþykkti Alþingi landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024-2027. Landsáætlunin var liður í innleiðingu og lögfestingu Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og inniheldur 60 aðgerðir sem skiptast í sex flokka (A-G). Aðgerð B12 fjallar um aukna þátttöku fatlaðs fólks í menningarlífi og var á ábyrgð menningar- og viðskiptaráðuneytis – nú menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis. Aðgerð B12 hljóðar svo:

 ,,Stofnaður verði vinnuhópur sem skoði leiðir til þess að auka þátttöku fatlaðs fólks í menningarlífi, bæði hvað varðar aðgengi að listum og menningu og listsköpun. Þátttaka í menningarlífi felur í sér tækifæri til að mæta á sýningar, tónleika og viðburði, til að njóta listar á hvaða formi sem er og til að starfa sem listafólk; sýnendur og höfundar verka. Auk þess verði horft til þess að auka aðgengi fatlaðs fólks að listnámi‘‘. 

Í starfshópnum sátu:

Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir formaður skipuð án tilnefningar

Margrét M Norðdahl tilnefnd af Þroskahjálp

Kjartan Þór Ingason tilnefndur af ÖBÍ réttindasamtökum

Ólafur Snævar Aðalsteinsson tilnefndur af List án landamæra

Helga Rakel Rafnsdóttir tilnefnd af Bandalagi íslenskra listamanna.

Varamenn:

Agnar Jón Egilsson varaformaður skipaður án tilnefningar.

Sunna Elvíra Þorkelsdóttir tilnefnd af ÖBÍ réttindasamtökum.

Haraldur Civelek tilnefndur af Þroskahjálp.

Ásta Sóley Haraldsdóttir tilnefnd af List án landamæra.

Þórður Högnason tilnefndur af Bandalagi íslenskra listamanna.

Starfsmenn starfshóps fyrir hönd ráðuneytis voru Marta Nordal og Hekla Björk Hólmarsdóttir.