
Helga Vala tók þátt í pallborði málþingsins og fékk fljótlega spurningu um hvernig kjör öryrkja myndu batna þegar Samfylkingin kæmist í ríkisstjórn. Helga sagði þetta góða spurningu en hún vildi svara henni frá eigin hjarta, en ekki sem stjórnmálamaður. Hún sagði kerfið í raun vera mjög vitlaust.
Helgu finnst þetta illa farið með opinbert fé og heimskuleg stefna.

