
Fátæktargildran, verkefni ÖBÍ réttindasamtaka og auglýsingastofunnar Brandenburg, hefur verið tilnefnd til Lúðursins í þremur flokkum. ÍMARK veitir Lúðurinn fyrir framúrskarandi auglýsingar ár hvert á verðlaunahátíð sinni, en hún fer þetta árið fram þann 6. mars í Háskólabíói. ÖBÍ vilja færa ÍMARK kærar þakkir fyrir tilnefningarnar og Brandenburg og öðrum samstarfsaðilum fyrir gott samstarf.
Fátæktargildran er tilnefnd í flokkunum PR, Almannaheillaaauglýsingar – Opinn flokkur og Almannaheillaauglýsingar – herferðir.
» Sjá lista yfir öll hin tilnefndu í öllum flokkum
ÖBÍ setti upp táknræna fátæktargildru við Alþingishúsið í Reykjavík 17. október á síðasta ári, á alþjóðlegum baráttudegi gegn fátækt, til þess að vekja athygli á stöðu þeirra þúsunda sem búa við fátækt á Íslandi.
Gildran vakti gríðarlega athygli, bæði á meðal vegfarenda og fjölmiðla. Fjallað var um gjörninginn í öllum helstu miðlum landsins og ljóst að stór hluti landsmanna varð var við hana. Þá var hún höfð til sýnis í Smáralind 18. og 19. október þar sem mikill fjöldi kom og skoðaði gildruna.

