FréttStafrænt aðgengi

Hey Google, skilur þú íslensku?

By 23. febrúar 2026No Comments

ÖBÍ réttindasamtök og Almannarómur stóðu fyrir opinni málstofu í Mannréttindahúsinu undir yfirskriftinni „Hey Google, skilur þú íslensku?“.  Umfjöllunarefni fundarins var raddstýring snjalltækja og var fundurinn vel sóttur.

Rætt var sérstaklega hvernig raddstýring getur opnað snjalltækni fyrir fleirum, sérstaklega mörgum fötlunarhópum, nú þegar lausnir á íslensku eru enn af skornum skammti. Fundargestir fóru yfir stöðuna eins og hún blasir við í dag, tækifærin sem gefast og hver næstu skref þurfi að vera. Hvað þurfi til að íslenskar raddlausnir verði raunverulegur valkostur og hverjir geti rutt brautina.

Fundurinn var rittúlkaður á sjálfvirkan hátt með aðstoð Tiro, sem gafst vel.