
Vegna mikillar aðsóknar á námskeið fyrir sjálfstætt starfandi öryrkja á síðasta ári hafa ÖBÍ réttindasamtök ákveðið að endurtaka leikinn og halda slíkt námskeið á nýjan leik þann 12. febrúar.
Námskeiðið „Hvernig geta öryrkjar verið sjálfstætt starfandi?“ var upphaflega haldið í mars 2019. Umtalsverður áhugi var á námskeiðinu og þurfti að bæta við fundarrými til að anna eftirspurn. Námskeiðið er á vegum kjarahóps ÖBÍ og atvinnu- og menntahóps ÖBÍ.
Leiðbeinandi er sem fyrr Jón Arnar Baldurs, aðjunkt við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og löggiltur endurskoðandi. Að auki mun starfsmaður frá TR svara spurningum varðandi áhrif atvinnutekna við útreikning örorkulífeyris.
Rit- og táknmálstúlkun verður í boði og mikilvægt að skrá óskir um túlkun í umsóknarformi. Þá verður einnig hægt að taka þátt á námskeiðinu í gegnum Zoom.
Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig á að setja upp rekstrarreikning á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga um tekjur og gjöld, svo að fylla út eyðablöð skattaframtals á grundvelli upplýsinga í rekstrarreikningi.
Einnig verður fjallað um rekstur á eigin kennitölu. veltulágmarkið í virðisaukaskatti, frádráttarbæran rekstrarkostnað, hvað má ekki draga frá tekjum, einka- og eignakostnað, gerð rekstrarreiknings, framtal til skatts og önnur eyðublöð sem tilheyra einstaklingsrekstri.
Takmarkaður sætafjöldi er í boði. Nauðsynlegt að skrá sig á hlekknum hér að neðan en lokað verður fyrir skráningar 9. febrúar.
Skráning á námskeið: Hvernig geta öryrkjar verið sjálfstætt starfandi?

