
ÖBÍ réttindasamtök tóku þátt í landssamráðsfundi gegn ofbeldi sem haldinn var á Hilton Reykjavík Nordica í síðustu viku. Ríkislögreglustjóri og félags- og húsnæðismálaráðuneytið stóðu að fundinum.
Markmið fundarins voru að bera saman reynslu og lærdóm þátttakenda, kynna nýjungar og rannsóknir og leggja fram tillögur að úrbótum. Fyrirlesarar úr öllum áttum fjölluðu um ofbeldi og mögulegar aðgerðir til að stemma stigu við því.
Þá voru haldnar fjórar vinnustofur; um þverfaglega þjónustu við þolendur ofbeldis, heimilisofbeldi og landsbyggðina, ofbeldi og eldra fólk og drengi og karla sem þolendur ofbeldis.
Síðastnefnda vinnustofan var skipulögð af ríkislögreglustjóra og EXIT, samráðsvettvangi um leið út úr afbrotum. ÖBÍ á aðild að EXIT-verkefninu.
Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ, sat í pallborðsumræðum undir yfirskriftinni „Hvaða breyttu birtingarmyndir ofbeldis eruð þið að sjá á ykkar vettvangi?“. Auk hennar tóku meðal annars þátt formaður Kennarasambands Íslands, stofnandi Matthildar – samtaka um skaðaminnkun, og framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf.

