FréttSRFF

Lögfestingargjöf afhent ráðuneytum landsins

By 11. febrúar 2026No Comments

ÖBÍ réttindasamtök heimsóttu ráðuneyti landsins og gáfu þeim gjöf í tilefni lögfestingar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Ráðuneytin fengu bókina The United Nations Convention on the Rights of Persons with Disabilities: A Commentary. Hún er hagnýt og ítarleg leiðsögn um samninginn, þar sem farið er yfir ákvæði hans með skýringum, samhengi og túlkun. Bókin ætti að nýtast ráðuneytunum vel í daglegri vinnu við stefnumótun, laga- og reglugerðarvinnu og eftirfylgni.

Við vonum að bókin gagnist vel við að innleiða ákvæði SRFF og hlökkum til samstarfsins við að tryggja að fatlað fólk njóti mannréttinda.

Lögfestingin setur skýran ramma um næstu skref. Við hlökkum því til áframhaldandi samstarfs við stjórnvöld um innleiðingu ákvæða samningsins, svo Ísland standist allar skuldbindingar hans.