FréttHeilbrigðismálMálefni barna

ÖBÍ gefur HTÍ nýjan skimunarmæli

ÖBÍ réttindasamtök færðu Heyrnar- og talmeinastöð Íslands (HTÍ) nýjan skimunarmæli sem nýtist við heyrnarskimun skólabarna í tilefni af degi heyrnar í gær.

Bæði HTÍ og Heyrnarhjálp kölluðu með skýrum hætti eftir því í gær að slík skimun verði tekin upp að nýju hér á landi. Ísland er eitt fárra landa í Evrópu sem skimar ekki heyrn grunnskólabarna.

„Reglubundin heyrnarskimun grunnskólabarna gæti skipt sköpum. Hún gæti ekki aðeins bætt líðan og námsárangur barna heldur einnig dregið úr óþarfa greiningum og stytt biðlista í kerfinu,“ skrifaði Telma Sigtryggsdóttir í grein á Vísi í gær, en hún er bæði formaður heilbrigðishóps ÖBÍ og formaður Heyrnarhjálpar.

Gerum þetta saman!

Með gjöfinni vill ÖBÍ leggja sitt af mörkum til að börnin okkar fái þá þjónustu sem þau eiga rétt á. Regluleg heyrnarskimun er mikilvægur hluti af heilsuvernd barna og getur skipt sköpum fyrir þátttöku í námi, félagslífi og daglegum samskiptum. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur jafnframt hvatt heilbrigðisyfirvöld til að innleiða reglubundna heyrnarskimun sem fastan þátt í heilsuvernd skólabarna.

„Við viljum leggja okkar af mörkum og ryðja hindrunum úr vegi. ÖBÍ tekur heils hugar undir ákall um að heyrnarskimun skólabarna verði tekin upp á ný. Það er einföld, skynsamleg og mannúðleg fjárfesting í velferð barna,“ segir Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka.

ÖBÍ skorar nú sérstaklega á samtök og samfélagslega sinnuð fyrirtæki að fylgja fordæminu, leggja til sambærilegar gjafir eða fjárhagslegan stuðning og taka þátt í sameiginlegu átaki til að tryggja að heyrnarskimun í grunnskólum verði endurvakin.